Menningarborgin Beirút lifnar við að nýju Heimsljós 6. júlí 2021 13:33 Frá hátíðinni um helgina. UNESCO Ísland styrkir menningarlíf í Beirút. Um nýliðna helgi fór fram TERDAD listahátíðin í Beirút en hátíðin var sérstaklega styrkt með framlagi frá Íslandi í þeim tilgangi að endurlífga menningarlíf borgarinnar eftir sprenginguna miklu í ágústmánuði á síðasta ári. Listahátíðin um helgina er hluti af átaksverkefni sem UNESCO hleypti af stokkunum eftir sprenginguna og kallast LeBeirut Initiative. Hátíðin stóð yfir í þrjá daga og þótti takast með afbrigðum vel. Alls tóku um 200 listamenn þátt í hátíðinni, fjöldi sýninga var í borginni og listviðburðir af ýmsu tagi, meðal annars dans, leiklist, kvikmyndalist, tónlist og teiknimyndasögur – allt til marks um endurreisn skapandi starfsemi í borginni. Framlag Íslands, fimmtán milljónir króna, var einmitt nýtt í því skyni að styðja við bakið á listamönnunum sjálfum og menningarsamtökum á sviði leiklistar, sviðslista, tónlistar og kvikmynda. „Á meðal þeirra svæða sem urðu eyðileggingu að bráð voru samfélög og miðstöðvar hins skapandi hagkerfis borgarinnar, Menningarlíf og sköpun eru þungamiðja í því að endurreisa þolgóð samfélög. Þetta fjárframlag greiðir götuna fyrir því markmiði,“ sagði Ernesto Ottone aðstoðarforstjóri UNESCO í frétt á vef stofnunarinnar síðastliðinn vetur þegar tilkynnt var um framlag Íslands til átaksins. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Sprenging í Beirút Líbanon Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Sprenging í Beirút Líbanon Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent