Byrjunarliðið gegn Póllandi: Markaskorarinn kemur inn og Aron Einar og Birkir færast nær hundrað leikjunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júní 2021 14:40 Mikael Neville Anderson skoraði mark Íslands gegn Færeyjum á föstudaginn og er í byrjunarliðinu gegn Póllandi. vísir/vilhelm Arnar Þór Viðarsson gerir fimm breytingar á byrjunarliði íslenska karlalandsliðsins fyrir leikinn gegn Póllandi í Poznan í dag.
Rúnar Alex Rúnarsson, Guðmundur Þórarinsson, Mikael Neville Anderson, Andri Fannar Baldursson og Albert Guðmundsson koma inn í byrjunarliðið frá 0-1 sigrinum á Færeyjum á föstudaginn. Mikael skoraði eina mark leiksins. Ögmundur Kristinsson, Valgeir Lunddal Friðriksson, Jón Dagur Þorsteinsson, Ísak Bergmann Jóhannesson og Kolbeinn Sigþórsson detta út úr byrjunarliðinu. Reynsluboltarnir Birkir Bjarnason og Aron Einar Gunnarsson eru í byrjunarliðinu þriðja leikinn í röð. Birkir leikur sinn 98. landsleik í dag og Aron Einar sinn 97. Byrjunarlið Íslands í leiknum gegn Póllandi í dag!Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á RÚV.Our starting lineup for the friendly against Poland.#fyririsland pic.twitter.com/ZX6yz5yret— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) June 8, 2021 Guðmundur Þórarinsson er í byrjunarliði íslenska landsliðsins í fyrsta sinn síðan í markalausu jafntefli gegn Eistlandi 15. janúar 2019. Selfyssingurinn leikur sinn sjöunda landsleik í dag. Þriðja leikinn í röð byrja þeir Hjörtur Hermannsson og Brynjar Ingi Bjarnason í miðri vörn Íslands. Íslenska liðið tapaði fyrir Mexíkó um þarsíðustu helgi, 2-1, og vann svo Færeyjar á föstudaginn, 1-0, eins og áður sagði. Leikur Póllands og Íslands hefst klukkan 16:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
HM 2022 í Katar Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Horfðu á golfmót í körfubíl Golf Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Fleiri fréttir Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs „Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Stefán Ingi og Brynjólfur skiluðu sínu í hörkuleik Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Hjörtur og Kolbeinn unnu þriðja leikinn í röð Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Valshjartað slær enn hjá hetju KR Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Logi á skotskónum þrátt fyrir tap Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield KR upp í Bestu deildina Albert náði ekki að endurtaka góða innkomu Malmö í frábærum málum MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Hull enn taplaust í deildinni Emilía hetja RB Leipzig Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Sjá meira