Fimm nýir Volvo FH16 dráttarbílar afhentir Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 19. maí 2021 07:01 Þrír af bílunum sem voru afhentir og nýir eigendur. Fimm nýir Volvo FH16 dráttarbílar voru afhentir með viðhöfn hjá Velti á Hádegismóum 8 á föstudaginn. Það voru eigendur og starfsmenn fyrirtækjanna Ragnars og Ásgeirs í Grundarfirði og Jón og Margeirs í Grindavík sem komu og tóku formlega við þessum glæsilegu bílum af nýrri kynslóð Volvo FH16.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Brimborg. „Það var mikill heiður og virkilega gaman að tvö svona öflug fyrirtæki hafi fengið nýjustu kynslóð Volvo FH16 afhenta sama dag. Þessi afhending markar upphaf mikillar bylgju afhendinga hjá Velti næstu mánuði og því gríðarlega spennandi tímar framundan hjá Velti. Byrjun ársins 2021 er sú sterkasta í sögu Volvo atvinnutækja hjá Brimborg | Velti og það stefnir í metár bæði í vörubílum og vinnuvélum hjá Velti. Það er ekki sjálfgefið að hægt sé að afhenda svona marga bíla á sama degi, en í þessu verkefni unnu söludeild og þjónustudeild/verkstæði frábærlega saman og ómetanlegt að hafa þetta allt á einu stað þar sem allir vinna sem ein heild,“ segir Marteinn Jónsson, framkvæmdarstjóri Veltis. Framúrskarandi þægindi og nákvæmni með I-SHIFT í nýjum Volvo FH16 dráttarbíll Þrír af fimm Volvo FH16 bílum sem voru afhentir. Nýr Volvo FH16 er magnaður enda framúrskarandi tækni og gæðaefni höfð að leiðarljósi við hönnun og þróun bílsins. Bíllinn er hannaður með þægindi ökumanns í huga og öll stjórntæki í réttri vinnuhæð. Ökumaðurinn getur bæði notað I-SHIFT í gírstönginni eða í þar til gerðum hnapp í mælaborði bílsins allt eftir því hvað hentar hverju sinni, nákvæmni I-SHIFT er einstök. Í bílnum er 9“ skjár þar sem þú getur fylgst með umhverfi bílsins, umferðinni og farmi bílsins með allt að átta myndavélum og ökumannsforritum.
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent