Danshópurinn Seiðr er hópur einstaklinga í sviðslist hér á landi sem kynntist í gegnum súludans. Á morgun, laugardaginn 3. Apríl stendur hópurinn fyrir klukkutíma löngum viðburði þar sem súludans verður í hávegum hafður.
„Við gerum þó einnig atriði á gólfi, á stólum og svokölluðum lollypop. Þeir sem koma fram á sýningunni eru Karen Sif, Ásta Marteins aka Love, Aurora Aether, Carmen Dea Untamed, Neyta, Sólveig, Þórunn, Helga, Kristín og Davíð. Kynnir sýningarinnar er Gefjun en hún er einnig meðlimur í Seiðr.“
Vegna heimsaldursins segir Sólveig hópinn hafa þurft hugsa út fyrir boxið þegar kom að því að halda páskasýningu og kom þá upp sú hugmynd að halda viðburðinn rafrænt.
Það hefur einu sinni áður verið haldin rafræn sýning í súludansi en þetta er fyrsta skiptið á Íslandi með þessu sniði allavega.
Hvernig verður fyrirkomulagið?
„Allir sem kaupa sér aðgang að sýningunni fá senda slóð þar sem þeir geta nálgast viðburðinn á netinu. Sýningin fer svo í loftið 3. Apríl klukkan átta og verða meðlimir Seiðr einnig aðgengilegir í spjall. Fyrir þá sem geta ekki horft akkúrat á þessum tíma geta nálgast hana á þessari sömu slóð í þrjá daga á eftir, svo að það ætti enginn að þurfa að missa af þessu.”
Verður sýningin við allra hæfi?
„Atriðin eru fjölbreytt en þetta er samt sem áður hugsað fyrir fullorðna og þar sem sum atriðanna eru ekki við hæfi barna. Sýningin er því bönnuð innan átján ára.”
Hvernig finnst þér viðmótið vera til súludans á Íslandi?
„Þegar súludans, í þeirri mynd sem hann er stundaður núna, kom fyrst fram á sjónarsviðið á Íslandi þá skiptist fólk svolítið í fylkingar og hann þótti frekar mikið tabú. Núna hefur margt vatn runnið til sjávar og hugarfarsbreytingin mikil. Flestir eru farnir að átta sig á gildi og virði listgreinarinnar,” segir Sólveig að lokum.