Mismikil kynlöngun og kynhvöt er eitt af algengari vandamálum sem pör kljást við í kynlífi. Ekkert eitt er það rétta þegar kemur kynlöngun og því mikilvægt að fólk sé heiðarlegt og opið með þarfir sínar og langanir við maka sinn.
Í þeirri könnun sem ætluð var körlum sögðust tæplega 80% hafa meiri eða mikið meiri kynþörf en maki sinn. Í könnuninni sem ætluð var konum má sjá að svörin dreifast jafnar á milli svarmöguleika. Þar segist þriðjungur kvenna hafa meiri eða miklu meiri kynþörf en maki sinn.
Makamál höfðu samband við Áslaugu Kristjánsdóttur kynlífsráðgjafa og spurðu hana út í hennar túlkun á niðurstöðunum sem hægt er að sjá hér fyrir neðan.
Niðurstöður*
KARLAR: (3058 svöruðu könnuninni)
Mikið meiri - 51%
Meiri - 26%
Svipaða - 12%
Minni 8%
Mikið minni - 3%
KONUR: 2867 (svöuðu könnuninni)
Mikið meiri - 18%
Meiri - 16%
Svipaða - 21%
Minni - 24%
Mikið minni - 21%
Heldur þú að það sé mögulegt að hluti af þeirri ástæðu að karlar upplifi sig með meiri kynlöngun (í gagnkynhneigðum samböndum) geti verið sú að þeir þurfi minni örvun en konur fyrir kynlíf?
„Já, það gæti verið hluti af skýringunni. Líka það að við lærum það að karlar eigi að vera með meiri kynlöngun og vilja meira kynlíf en konur. Í mínu starfi sem kynlífsráðgjafi sé ég þetta, mismikla kynlöngun, trufla fólk á allt annan hátt þegar það er karlinn sem vill minna kynlíf. Þetta setur oft parið í meiri klemmu því það er eins og það eigi ekki að vera þannig.“
Karlar læra það að þeir eiga alltaf að vera graðir og læra inn á það, það eitt og sér gæti jafnvel orsakað það að þeir þurfi minni örvun og eru oftar til.
„Konur upplifa þetta meira vandamál ef þetta er á þennan veginn því þær geta farið í þá hugsun að það sé eitthvað að. Makinn sé að halda framhjá eða að fá útrás einhversstaðar annars staðar.“
Eru mörg pör eða sem leita til þín með þetta vandamál, of mikinn mun á kynlöngun?

„Já, þetta er algengasta ástæða þess að fólk leitar sér kynlífsráðgjafar um allan heim. Það er ólíklegt að við eignumst maka sem er með sömu löngun og við alltaf. Það getur svo orðið vandi þegar fólk fer að upplifa það að vera ólík sem vandamál. Fólk fer þá yfirleitt að túlka það þannig að gjáin sé stærri en hún er. Endurtekin höfnun veldur því. Þegar við vinnum í þessu þá minnkar bilið og fólki finnst það brúanlegt. Löngunin verður ekki eins en það hættir að trufla parið. Báðir aðilar öðlast meiri skilning og finnst að þörfum þeirra verði mætt.“
Umsjónarmaður Makamála mætti í Brennsluna á FM957 og ræddi niðurstöðurnar ásamt því að kynna til leiks nýja Spurningu vikunnar. Hægt er að hlusta á líflegar umræður hér fyrir neðan.
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.