Það er ekkert eitt sem er eðlilegt eða eitt norm til að miða sig við í þessum málum og mikilvægt að fólk sé heiðarlegt og opið með sínar þarfir og langanir. Sumir eru sáttir og fullnægðir að stunda kynlíf einu sinni í mánuði á meðan aðrir vilja helst stunda kynlíf einu sinni á dag.
Í einhverjum tilvikum getur mikill munur á þörfum verið vandamál en stundum nær fólk að mætast á miðri leið.
Kynhvötin okkar getur líka verið háð mörgum þáttum, andlegum, líffræðilegum sem og utanaðkomandi þáttum. Hún getur líka verið mismikil eftir tímabilum og aðstæðum hverju sinni. Makamál munu fjalla ítarlegra um kynhvöt og kynþörf á næstu dögum en út frá þessum hugleiðingum kemur Spurning vikunnar.
Hún er að þessu sinni kynjaskipt og fólk beðið að svara þeirri könnun sem á við þeirra kyn.
Ertu með minni eða meiri kynþörf en maki þinn?
Konur svara hér:
Karlar svara hér:
Spurning vikunnar er fastur liður á Makamálum þar sem lesendur Vísis eru spurðir spurninga um ástina, sambönd, samskipti og kynlíf. Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar Spurningar vikunnar sem og niðurstöður hér.