Hæsta framlagið fjórða árið í röð frá UN Women á Íslandi Heimsljós 4. maí 2020 12:54 Landsnefnd UN Women á Íslandi sendi á síðasta ári rúmlega 127 milljónir króna til alþjóðlegra verkefna UN Women sem er hæsta fjárframlag allra landsnefnda til verkefna UN Women á árinu óháð höfðatölu. Þetta er fjórða árið í röð sem landsnefndin nær þessum frábæra árangri. Í nýrri ársskýrslu landnefndarinnar kemur fram að aldrei hafi á einu ári jafnmargir styrktaraðilar gengið til liðs við samtökin, en tæplega 3.000 nýir ljósberar bættust í hópinn á síðasta ári. Ljósberar voru orðnir rúmlega 9.200 í lok árs. „Ljósberar eru fólk á öllum aldri og búa í öllum landshlutum. Mjög bættist í hóp styrktaraðila utan höfuðborgarsvæðisins á árinu, en 34% nýrra ljósbera eru búsettir utan þess, og hefur hlutfallið aldrei verið svo hátt. Tveir þriðju nýskráðra voru konur,“ segir í skýrslunni. Á síðasta ári, þrítugasta starfsári UN Women á Íslandi, var ákveðið að beina kastljósinu að baráttunni gegn þvinguðum barnahjónaböndum og málefnið var í forgrunni í fyrsta fræðslu- og söfnunarþætti landsnefndarinnar í sjónvarpi. Þátturinn „Stúlka – ekki brúður“ var sýndur í beinni útsendingu á RÚV 1. nóvember þar sem sjónum var beint að Malaví og þeim verkefnum UN Women sem miða að því að uppræta þvinguð barnahjónabönd í því landi, en tíðni þvingaðra barnahjónabanda í Malaví er með því hærra sem gerist í heiminum. Um 20% íslensku þjóðarinnar horfði á þáttinn og fræddist um leið um verkefni UN Women. Þá lagði fjöldi fólks málefninu lið með því að hringja inn og gerast mánaðarlegir styrktaraðilar UN Women á Íslandi. „Sterk staða Íslands á sviði jafnréttismála veitir okkur hljómgrunn á alþjóðavettvangi og við tökum ábyrgðarhlutverki okkar alvarlega. Jafnrétti kynjanna er hornsteinn íslenskrar utanríkisstefnu og hefur verið leiðarljós í þróunarsamvinnu Íslands um árabil. Þessi áhersla var staðfest á dögunum þegar niðurstöður árlegrar könnunar Efnahags- og framfarastofnunarinnar á þróunarsamvinnu sýndi að yfir 80% af þróunarsamvinnu Íslands er á marktækan hátt ætlað að stuðla að jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna,“ segir meðal annars í ávarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Á aðalfundi UN Women í síðustu viku urðu þær breytingar á stjórn samtakanna að Kristján Hjálmarsson, Ólafur Elínarson og Ólafur Þ. Stephensen voru kosnir í stjórn til tveggja ára. Aðrir í stjórn eru Arna Grímsdóttir, formaður, Fanney Karlsdóttir, varaformaður, Kristín Ögmundsdóttir, gjaldkeri, Bergur Ebbi Benediktsson, Soffía Sigurgeirsdóttir og Þórey Vilhjálmsdóttir. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Mest lesið „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Innlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir á aðfangadag Veður Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Innlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir á aðfangadag Veður Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent