Stafræn fjáröflunarherferð Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna Heimsljós samstarf 31. mars 2020 11:23 Hóstað í olnbogabótina. UNFPA
Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) hefur hrundið af stað stafrænni fjáröflunarherferð til stuðnings þeim sem þjást af ósýnilegum afleiðingum COVID-19 faraldursins, þar á meðal konum og stúlkum sem ganga ekki lengur að öruggum stuðningi á meðgöngu og við fæðingu. Sjóðurinn leggur áherslu á að öryggi barnshafandi kvenna á meðgöngu og við fæðingu kalli á strangar varúðarráðstafanir til að draga úr smitleiðum kórónaveirunnar. Meginverkefni UNFPA eru á sviði kyn- og frjósemisréttinda og Natalia Kanem framkvæmastýra sjóðsins varar við því að konur, stúlkur og heilbrigisstarfsmenn megi ekki gleymast nú þegar heimurinn bregst við alvarlegustu heilsuvá síðustu hundrað ára. Hún segir að faraldurinn reyni mjög á heilbrigðiskerfi þjóða um allan heim. Natalia bendir á að jafnan á krepputímum verði truflun á brýnni heilbrigðisþjónustu á sviði kyn- og frjósemisréttinda og geta yfirvalda til að bregðast til dæmis við kynbundnu ofbeldi kunni að minnka, á sama tíma og konur og stúlkur þurfi mest á þeirri þjónustu að halda. „Nú er tími samstöðu, einbeitingar og óeigingirni. Við megum ekki gleyma því að til er fólk sem ber ekki mikið á en er í mikilli hættu vegna afleiðinga faraldursins,“ segir Kanem og vísar þar meðal annars til barnshafandi kvenna, sem þurfi umönnun á meðgöngu en vita ekki fyrir víst hvort óhætt sé að fara á heilsugæslustöðina, og kvenna í ofbeldissamböndum sem óttast um líf sitt en komast ekki út af heimilinu. Mannfjöldasjóðurinn vinnur með stjórnvöldum ríkja að því að forgangsraða þörfum kvenna og stúlkna í samræmi við markmið sjóðsins um að tryggja gerð fjölskylduáætlana, vinna að forvörnum gegn mæðradauða, kynbundnu ofbeldi og skaðlegum siðum, fyrir árið 2030, samkvæmt heimsmarkmiðunum. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði í yfirlýsingu í síðustu viku þar sem hann hvatti til allsherjarvopnahlés í heiminum að konur og börn væru meðal þeirra þjóðfélagshópa sem væru hvað viðkvæmastir á átakasvæðum og væru í hvað mestri hættu að verða fyrir tjóni í faraldrinum sem nú geisar. Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) er ein fjögurra lykilstofnana sem Ísland styður í fjölþjóða þróunarsamvinnu. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Innlent Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Innlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Erlent Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Innlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent