Sigurhátíð íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu í Búdapest á þriðjudagskvöldið í síðustu viku gæti sett mikinn svip á framtíð liðsins því það virðist vera sem að Knattspyrnusamband Íslands þurfi að velja á milli þjálfarans og nokkurra leikmanna liðsins.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins þá íhuga nokkrir leikmenn, sem hafa verið fastakonur í landsliðinu, að gefa ekki kost á sér í komandi landsliðsverkefni vegna hegðunar landsliðsþjálfarans.
Margir leikmannanna voru í uppnámi eftir atvik síðustu viku og eftir því sem mbl.is kemst næst situr það enn í mörgum þeirra þrátt fyrir að þjálfarinn hafi haft samband og beðist afsökunar á hegðun sinni.
Jón Þór Hauksson hefur verið í sóttkví síðan að hann kom til landsins frá Ungverjalandi en mun fá tækifæri til að skýra sitt mál þegar hann losnar úr henni.
Fótbolti.net sagði fyrst frá því að Jón Þór Hauksson hafi verið undir áhrifum áfengis í fögnuði liðsins eftir að sætið á EM var í höfn og að landsliðsþjálfarinn hafi þótt fara langt yfir strikið í samræðum við leikmenn sem sumar voru í uppnámi eftir þau samtöl.
Íslenska liðið tryggði sér sæti á Evrópumótinu í Englandi með 1-0 sigri á Ungverjalandi í síðustu viku en liðið er öruggt með að vera eitt af liðunum í öðru sæti sem fer beint á EM. Evrópumótið fer ekki fram fyrr en sumarið 2022 og því er langt í mótið.
Næstu verkefni íslenska kvennalandsliðsins er því undankeppni HM í knattspyrnu en næsta úrslitakeppni hennar fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi árið 2023.