Heimsendur bröns Pure Deli slær í gegn Pure Deli kynnir 26. nóvember 2020 13:28 Bröns heim að dyrum nýtur mikilla vinsælda. Fyrirtæki senda heimavinnnandi starfsmönnum bröns og vinir og ættingjar gleðja hvert annað með sendingu „Við byrjuðum á þessu í fyrstu bylgjunni í faraldrinum. Þá vorum við að senda bröns út um allan bæ fyrir fólk sem vildi gleðja hvert annað. Það sló algjörlega í gegn og við að vorum að sendast á allt að 100 heimili suma dagana! Það var ótrúlega gaman að sjá gleðina í andlitum fólks þegar maður mætti með brönsinn til þeirra og það vissi ekkert hver væri að senda,“ segir Jón Arnar Guðbrandsson, eigandi Pure Deli. Og ekkert lát er á brönssendingunum. Vinnustaðir hafa tekið þjónustunni fagnandi og senda nú bröns heim til starfsfólks í gríð og erg. „Við bjóðum fyrirtækjum að panta hjá okkur bröns alla daga vikunnar og senda heim til starfsfólks eða fá sent í vinnuna. Vinnuveitendur vilja gera fólki glaðan dag sem er kannski búið að vinna heima svo vikum skiptir. Við erum að sendast með brönsa um allan bæ og þakklætið og gleðin hjá fólki þegar við mætum er ótrúleg,“ segir Jón. Þá sé heimsendur glaðningur sniðug lausn þegar ekki er hægt að koma saman í hefðbundnar veislur á aðventunni. „Eins og staðan er núna er fólk ekki að mæta í fjölmenn jólahlaðborð og þá er þetta alveg frábær hugmynd til að gleðja. Núna er aðventan að ganga í garð og við þurfum öll að muna að vera góð við hvort annað því við höfum aldrei þurft eins mikið á því að halda og akkúrat núna.“ Greinin er unnin í samstarfi við Pure Deli. Til að panta girnilegan brönsbakka má hringja beint í Pure Deli s: 553 3133. Úrvalið má skoða hér á heimasíðunni. Matur Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira
„Við byrjuðum á þessu í fyrstu bylgjunni í faraldrinum. Þá vorum við að senda bröns út um allan bæ fyrir fólk sem vildi gleðja hvert annað. Það sló algjörlega í gegn og við að vorum að sendast á allt að 100 heimili suma dagana! Það var ótrúlega gaman að sjá gleðina í andlitum fólks þegar maður mætti með brönsinn til þeirra og það vissi ekkert hver væri að senda,“ segir Jón Arnar Guðbrandsson, eigandi Pure Deli. Og ekkert lát er á brönssendingunum. Vinnustaðir hafa tekið þjónustunni fagnandi og senda nú bröns heim til starfsfólks í gríð og erg. „Við bjóðum fyrirtækjum að panta hjá okkur bröns alla daga vikunnar og senda heim til starfsfólks eða fá sent í vinnuna. Vinnuveitendur vilja gera fólki glaðan dag sem er kannski búið að vinna heima svo vikum skiptir. Við erum að sendast með brönsa um allan bæ og þakklætið og gleðin hjá fólki þegar við mætum er ótrúleg,“ segir Jón. Þá sé heimsendur glaðningur sniðug lausn þegar ekki er hægt að koma saman í hefðbundnar veislur á aðventunni. „Eins og staðan er núna er fólk ekki að mæta í fjölmenn jólahlaðborð og þá er þetta alveg frábær hugmynd til að gleðja. Núna er aðventan að ganga í garð og við þurfum öll að muna að vera góð við hvort annað því við höfum aldrei þurft eins mikið á því að halda og akkúrat núna.“ Greinin er unnin í samstarfi við Pure Deli. Til að panta girnilegan brönsbakka má hringja beint í Pure Deli s: 553 3133. Úrvalið má skoða hér á heimasíðunni.
Greinin er unnin í samstarfi við Pure Deli. Til að panta girnilegan brönsbakka má hringja beint í Pure Deli s: 553 3133. Úrvalið má skoða hér á heimasíðunni.
Matur Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira