Útlit fyrir rysjótt og vætusamt veður um helgina Atli Ísleifsson skrifar 18. september 2020 07:08 Spáð er góðu veðri á Austurlandi í dag. Veðurstofan
Veðurstofan spáir veðurblíðu á austanverðu landinu í dag, þar sem verður léttskýjað og sæmilega hlýtt. Vestantil er skýjað og lítilsháttar væta með köflum, en vaxandi sunnanátt og rigning seint í kvöld. Á vef Veðurstofunnar segir að útlit sé fyrir allhvassa sunnanátt norðvestantil á landinu seint í kvöld með snörpum vindhviðum við fjöll, til dæmis á norðanverðu Snæfellsnesi og við Ísafjarðardjúp. Varasöm aktursskilyrði geti skapast fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. „Um helgina er útlit fyrir rysjótt og vætusamt veður, einkum á sunnudag en þá á kröpp lægð að fara yfir landið með hvassviðri eða stormi og mikilli rigningu. Í kjölfar lægðarinnar kólnar og má jafnvel búast við snjókomu norðan heiða á mánudag.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 13-18 m/s og rigning eða skúrir, en bjart með köflum A-lands. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast A-til. Á sunnudag: Gengur í sunnan og suðvestan storm með talsverðri rigningu, hiti 5 til 12 stig. Norðlægari á Vestfjörðum með slyddu um kvöldið. Á mánudag: Norðvestlæg átt með snjókomu eða éljum N-lands og hita nálægt frostmarki, en skúrum og 2 til 7 stiga hita sunnan heiða. Á þriðjudag (haustjafndægur): Norðaustlæg átt, skýjað og dálítil rigning við S-ströndina. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag og fimmtudag: Norðlæg átt og él, en þurrt á S-verðu landinu.
Veður Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Fleiri fréttir Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Ákveðin suðaustanátt og víða snjókoma Stíf norðanátt og frost í flestum landshlutum Köldu éljalofti beint til landsins Víða kaldi og él Lægð beinir vestlægri átt til landsins Hlýnar með skúrum og slydduéljum Stormur á Austfjörðum Allhvass vindur með skúrum eða éljum Útlit fyrir allhvassan vind með rigningu Vindur á niðurleið en næsta lægð nálgast úr suðvestri Góðar líkur á rauðum jólum í Reykjavík Dregur úr vindi og úrkomu með morgninum Köld norðanátt og víða él Stöku él og vaxandi norðaustanátt Skúrir eða él á víð og dreif Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Gular viðvaranir í borginni og víðar Viðvaranir komnar í gildi og orðið ófært sums staðar Frost fór víða yfir tuttugu stig í nótt Kaldri norðlægri átt beint til landsins Gul viðvörun á Vestfjörðum Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Hiti að sex stigum Norðanátt og éljalofti beint til landsins Áfram kalt og bætir í vind á morgun Sjá meira