Vaxandi lægð sem fer yfir landið og rigning víðast hvar Atli Ísleifsson skrifar 6. september 2020 07:15 Svona lítur spákortið úr fyrir klukkan 16 i dag. Rigning verður víðast hvar, með talsverðri rigningu sunnan- og vestantil eftir hádegi, en þurrt norðaustast á landinu fram á kvöld. Veðurtofan
Um 400 kílómetrum vestur af Reykjanesi er vaxandi 997 millibara lægð sem fer yfir landið í dag. Landsmenn mega reikna með sunnan og suðaustan átt, víða 10-15 metrum á sekúndu, en heldur hvassari í vindstrengjum um norðvestanvert landið. Rigning verður víðast hvar, með talsverðri rigningu sunnan- og vestantil eftir hádegi, en þurrt norðaustast á landinu fram á kvöld. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Í nótt verði lægðin komin norður fyrir landið og rakasta loftið komið austur fyrir landið. „Vindur snýr sér til vesturs og það dregur úr úrkomu. Lægðin verður orðinn dýpri og það hvessir í nótt, vestan 15-23 m/s á austurhelmingi landsins á morgun og það gæti verið lag að huga að lausum munum á þeim slóðum. Hægari vindur vestantil á landinu. Víða dálítil rigning eða skúrir, en þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum og það fer að lægja annað kvöld.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Vestan og norðvestan 15-23 m/s, hvassast í vindstrenjum um austanvert landið, en heldur hægari vestantil á landinu. Rigning norðanlands og skúrir syðra, en þurrt að kalla fyrir austan. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á þriðjudag: Norðlæg átt 8-15 m/s, skýjað og úrkomulítið um norðanvert landið. Heldur hægari vindur sunnantil og bjart með köflum, en stöku skúrir um kvöldið. Hiti 3 til 7 stig, en 8 til 14 stig að deginum syðra. Á miðvikudag: Fremur hæg breytileg átt og víða bjartviðri. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast vestanlands. Hvessir, þykknar upp, og fer að rigna sunnan- og vestantil um kvöldið. Á fimmtudag: Suðaustan og austan 10-18 m/s, hvassast vestantil. Víða rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 7 itl 12 stig. Á föstudag: Ákveðin norðaustanátt og rigning um norðanvert landið, en skúrir syðra. Kólnar heldur. Á laugardag: Útlit fyrir norðanátt og rigningu norðanlands en bjartviðri sunnantil. Hiti 3 til 11 stig, hlýjast syðst.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Sjá meira