Apple CarKey væntanlegur í haust Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 6. apríl 2020 07:00 Apple CarKey mun gera fólki kleift að nota iPhone og Apple Watch sem bíllykla í framtíðinni. Vísir/Getty
Við prófanir á iOS 14, hugbúnaði fyrir iPhone og iPad, snjalltæki framleidd af Apple kom í ljós að Apple hyggst bjóða upp á Apple CarKey, eða Apple bíllykil. Fyrst kom virknin fram í prófunum á útgáfu 13.4 af iOS sem kom svo út í febrúar á þessu ári. En virðist ekki hafa verið hluti af endanlegri útgáfu. Virknin mun lýsa sér þannig að notendur nýti sér NFC (near-field communication) eða nálægðarsamskipti. Þá skynjar bíllinn símann og notendur geta þá notað símann sinn sem bíllykil. Það er þá hægt að velja hvort notuð er andlitsgreining eða lykilorð til að virkja lykilinn.Hversu mikil drægni ætli verði í Apple CarKey, ætli það virki að bera símann að höfði sér?Síminn eða jafnvel snjallúrið væri þá tengt við veskið í símanum, Apple Wallet og notandinn sækir þá forrit frá framleiðandanum til að virkja þessa möguleika. Þegar þetta hefur verið sett upp gæti notandi þá deilt lyklinum með vinum og fjölskyldu, sýnist honum svo. Þá væri til dæmis hægt að veita einskiptis aðgang að skotti bílsins og svo framvegis. Nákvæmt yfirlit yfir virknina verður þó ekki fáanlegt fyrr en endanleg útgáfa af iOS 14 kemur út sem verður samkvæmt nýjustu heimildum í kringum miðjan september.
Bílar Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent