Range Rover Evoque vinsælastur í sínum flokki hjá lesendum Auto Motor und Sport Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 18. febrúar 2020 07:00 Range Rover Evoque. Vísir/BL
Range Rover Evoque var í vikunni kjörinn „Besti innflutti minni sportjeppinn“ (Best Imported Compact SUV) hjá lesendum þýska tímaritsins Auto Motor und Sport. Jaguar F-TYPE tók þriðja sætið í flokki innfluttra blæjubíla (Best Imported Convertibles). Lesendur hrifnir af Jaguar Land RoverLesendur tímaritsins völdu Evoque sem besta innflutta sportjeppann í sínum flokki vegna fallegrar nýtískuhönnunar, mikilla og fjölbreyttra þæginda sem bíllinn býr yfir. Þar að auki þótti nýstárleg tækni bílsins bera af, eins og það var orðað á verðlaunahátíð Auto Motor und Sport sem fram fór í Stuttgart þar sem Felix Bräutigam, viðskiptastjóri hjá Jaguar Land Rover var til að veita báðum verðlaununum viðtöku. Bräutigam sagði af þessu tilefni að verðlaun tímaritsins, „The Best Cars Readers’ Choice“ væru ákaflega mikilvæg fyrir bílaiðnaðinn vegna álits lesendanna sem verðlaunin byggjast á. „Þess vegna erum við svo stolt yfir áliti þeirra sem velja Jaguar Land Rover ár eftir ár í skoðanakönnunum Auto Motor und Sport,“ sagði Bräutigam. Aftur og aftur á verðlaunapalliBílar frá Jaguar og Land Rover hafa átt mikilli velgengni að fagna á undanförnum misserum, ekki síst þegar kemur að vali á því sem kallast „Best Cars Avards“. Til dæmis var Evoque af fyrstu kynslóð valinn bæði besti innflutti sportjeppinn í sínum flokki 2015 hjá lesendum tímaritsins ásamt því að vera valinn besti torfærubíllinn í sínum flokki 2015, 2016 og 2017. Að þessu sinni var Jaguar F-TYPE sjötta árið í röð á verðlaunapalli á hátíð Auto Motor und Sport, en verðlaunabíllinn var fyrst kynntur í desember sl. og er nýkominn á markað. Þá var Jagur I-PACE valinn bíll ársins 2020 af BÍBB, Bandalagi íslenskra bílablaðamanna.
Bílar Tengdar fréttir Jaguar I-Pace er bíll ársins 2020 Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) hefur valið bíl ársins. Jaguar I-Pace hefur hlotið nafnbótina að þessu sinni. Annað sætir hreppir Audi e-tron quattro og í þriðja sæti er Mercedes Benz EQC. 16. október 2019 18:00 Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður
Jaguar I-Pace er bíll ársins 2020 Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) hefur valið bíl ársins. Jaguar I-Pace hefur hlotið nafnbótina að þessu sinni. Annað sætir hreppir Audi e-tron quattro og í þriðja sæti er Mercedes Benz EQC. 16. október 2019 18:00