Það hefur verið talað um að íbúar á Norðurlöndunum byrji að stunda kynlíf fyrr á lífsleiðinni en fólk annars staðar í heiminum. Í könnun sem Durex gerði fyrir nokkrum árum í 44 löndum, voru Íslendingar í 44. sæti og því með lægsta meðalaldurinn. Þá var meðal aldurinn í svörum þátttakanda hér á landi 15,6. Til samanburðar var meðalaldurinn 23 ár í Malasíu sem voru í fyrsta sæti listans. Hin norðurlöndin voru með okkur á botni listans, meðalaldurinn var 16,1 í Danmörku, 16,2 í Svíþjóð, 16,5 í Noregi og 16,5 í Finnlandi.
Við veltum fyrir okkur hver sé ástæðan á bak við lágan meðalaldur hér á landi. Er það lítil tenging við trúarbrögð, unglingadrykkja, frelsið, menningin hér eða eitthvað allt annað. Út frá þessum pælingum langar okkur að vita aldur lesenda þegar þeir misstu sveindóminn eða meydóminn. Hefur meðaltalið hækkað síðustu ár, lækkað eða staðið í stað? Við kynjaskiptum þessari könnun til þess að geta borið saman muninn á milli kynjanna. Niðurstöðurnar verða svo kynntar á Makamálum eftir viku.
