54 prósent lesenda segist nota verjur við skyndikynni og 46 prósent gerir það ekki, samkvæmt niðurstöðum úr síðustu könnun Makamála. Alls tóku þátt 2500 lesendur þátt að þessu sinni. Við búum í upplýstu samfélagi þar sem allir ættu að vita um áhættu kynsjúkdóma við skyndikynni. En við vildum vita hvort fólk væri yfirleitt með varann þegar að hitna tekur í kolunum? Niðurstöður könnunarinnar sýna að í kringum helmingur ákveður að taka sénsinn.
Ása Ninna ræddi niðurstöðurnar í Brennslunni í dag og má hlusta á innslagið í spilaranum hér að neðan. Niðurstöðurnar komu henni aðeins á óvart.
Niðurstöður*
Notar þú verjur við skyndikynni?
Já 54 %
Nei 46 %
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.