Ísland fer án stiga í milliriðil á EM í handbolta eftir að liðið tapaði fyrir Ungverjum í kvöld, 24-16.
Ísland var 15-13 yfir í hálfleik en í síðari hálfleiknum gekk allt á afturfótunum hjá íslenska liðinu.
Liðið skoraði einungis sex mörk í síðari hálfleik og tapaði leiknum að lokum með átta marka mun. Slakasta frammistaða mótsins.
Það var nóg um að vera á Twitter þrátt fyrir tapið en brot af því besta má sjá hér að heðan.
Ég veit þegar Gumma Gumm er ekki skemmt, hann setur upp nákvæmlega sama svip og Pabbi minn. Svipur gamla skólans.
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) January 15, 2020
Djöfull vantar okkur einhvern sköllóttan í landsliðið.
— Kari Freyr Doddason (@Doddason) January 15, 2020
Hvernig stendur á því að það sé ekki búið að reysa styttu af Guðjóni Vali út á Seltjarnarnesi? #emruv#handbolti#islung
— Ómar Stefánsson (@OmarStef) January 15, 2020
Það er eitthvað mjög skondið að sjà dani fagna svona innilega með Ìslandi #Handbolti#EMRùv#RùvEM#StràkarnirOkkar#ÀframÌsland
— Árni Þór Gunnarsson (@ArniThor8) January 15, 2020
...við getum lært eitt af þessum fyrri hálfleik, aldrei hrósa dómgæslu. #emruv#handbolti
— Tryggvi Haraldsson (@tryggviharalds) January 15, 2020
6 a moti 8 i fyrri gekk bara þokkalega #spanjolargirðasig#emruv#handbolti
— Vilhelm Gauti (@VilliGauti) January 15, 2020
Að rifja upp þennan viðbjóð frá London 2012 er lögreglumál. Slökkti á TV. #emruv
— Lárus Gunnarsson (@larusgunnars) January 15, 2020
Held að stærstu tíðindin við þetta ungverska lið séu að það sé aðeins einn Zoltán á leikskýrslunni... #emruv
— Oddur J. Jónasson (@stjornuthydandi) January 15, 2020
Miðjumaður og skytta. Ekkert hafsent eða bakvarðar rugl #emruv
— Hilmar Örn Kárason (@Hilmarorn) January 15, 2020
Þetta er besta íslenska handboltalandslið sem ég hef séð síðan Guðmundur Guðmundsson var hornamaður í Víking.#emruv#EHFEuro2020
— Viktor Hardarson (@1vitaceae) January 15, 2020
Gaman að sjá að Danirnir eru farnir að svitna í stúkunni #emruv#handbolti
— Sigurður Svavarsson (@Siggivs) January 15, 2020
Svo er Bence líka brandarakall. pic.twitter.com/kaUEFZokiT
— Kari Freyr Doddason (@Doddason) January 15, 2020
Eg ætla að ættleiða Viktor Gisla eftir þetta mot #emruv
— Eyþór Helgi (@EysiBirgis) January 15, 2020
Þetta dómarateymi + ritaraborð er ekki að eiga stjörnuleik #handbolti
— Smári Jökull Jónsson (@smarijokull) January 15, 2020
Inspo fyrir miðaldra karlmenn:
— Björn Teitsson (@bjornteits) January 15, 2020
Strípur, MBA-nám, crossfit, Tesla
Alexander Petersson & Guðjón Valur Sigurðsson #handbolti
Getur einhver komið þeim skilaboðum til íslensku varnarinnar að segja bara við þennan Balogh: „You shall not pass“? #emruv
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) January 15, 2020
The revenge of Guðmundur.
— Alexander Einarsson (@alexander_freyr) January 15, 2020
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) January 15, 2020
Byrjun hálfleikja er mikilvægari kafli leiks en aðrir kaflar. Ungverjar hafa fullnýtt momentum sem góð byrjun á hálfleiknum skapaði. Momentum sem Ísland hefur ekki náð að snúa við allan hálfleikinn. #haus#emruv
— Haus hugarþjálfun (@hugarthjalfun) January 15, 2020
Jæja maður hefði alltaf verið mjög sáttur með að komast í milliriðla fyrir mót. En þessi leikur er mikið svekkelsi. Seinni hálfleikur afhroð en áfram veginn. Ólympíu umspil er möguleiki en semi final ólíklegt.
— Rikki G (@RikkiGje) January 15, 2020
Eg held persónulega að menn séu of þreyttir og Guðmundur ekki jafn duglegur að rótera liðinu og við höfum sprungið í seinni . En eg meina áfram gakk #emruv#handbolti
— Sigurður Ólafsson (@siggiolafss) January 15, 2020
Har en rigtigt godt tur hjem #emruv#denmark#HandballEM
— Óskar G Óskarsson (@Oggi_22) January 15, 2020
Þetta er ekki skemmtilegt #emruv
— Fanney Birna (@fanneybj) January 15, 2020
Hátt er fallið #emruv
— Guðmundur I. Guðmundsson (@Gudmundur77) January 15, 2020
Ísland er að spila eins og Barcelona á Anfield #emruv
— Einar Matthías (@einarmatt) January 15, 2020
Það er bara upp upp og áfram! Lítum á björtu hliðarnar, Danir og Frakkar farnir heim! #ÁframÍsland
— Auðunn Blöndal (@Auddib) January 15, 2020
Tek þetta tap alfarið á mig. Keypti mér ferð út á síðustu tvo leikina í milliriðli fyrr í dag og því fór sem fór hjá strákunum okkar. Biðst afsökunar.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) January 15, 2020
Pirrandi að tapa en samt eitthvað gaman að sjá Gumma valda Baunum vonbrigðum í 2. sinn á 4 dögum.
— Sóli Hólm (@SoliHolm) January 15, 2020
Við beisiklí núlluðum Danaleikinn og erum á pari við lágmarkskröfur sem hægt var að setja á þetta lið. Það eru svo mikil vonbrigði eftir fyrstu tvo leikina.
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) January 15, 2020
Þessi lokasókn án skots... þvílíka bullið í seinni hálfleik. Vá hvað það var erfitt að horfa á þetta.
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) January 15, 2020
Áfram gakk. Hrista þetta úr kerfinu sem fyrst. Það er bara uppávið eftir þetta! #emruv
— Þorkell Magnússon (@thorkellmag) January 15, 2020
Var rétt í þessu að brenna og skera mig. En það jákvæða er að Danir eru úr leik. #emruv
— Guðmundur Marinó (@GummiMarino) January 15, 2020
Jújú alltaf ömurlegt að tapa en ákveðin huggun að vita af svona mörgum Dönum sem eru að fara eyða kvöldinu í að grenja af sér íslenska fánanum sem þeir voru búnir að mála framan í sig #emruv
— María Björk (@baragrin) January 15, 2020
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er með eitthvað Dr Jekyll/Mr Hyde syndrome. Hvernig er hægt að spila svona vel í fyrri hálfleik og svona hrapallega í seinni? 100% með verstu frammistöðum á stórmóti sem lengi hefur sést, beint á eftir þeirri bestu á mánudaginn. #emruv
— Hulda Hvönn Kristinsdóttir (@HvonnHulda) January 15, 2020
Gerist á bestu bæjum, upp með hausinn og komum reiðir í milliriðilinn þar sem við förum á kostum aftur♂️
— Gummi Ben (@GummiBen) January 15, 2020
Annars er Man Utd - Wolves 19:45 á Stöð2Sport #FaCup pic.twitter.com/l5voXZsJZh