Veiðiþjófur í ellefu ára fangelsi vegna górilludráps Andri Eysteinsson skrifar 30. júlí 2020 22:48 Silfurbaksgórilla. Myndin er úr safni. Getty/Per Anders Petterson
Veiðiþjófur hefur verið dæmdur til ellefu ára fangelsisvistar í Afríkuríkinu Úganda eftir að hafa játað að hafa drepið silfurbaksgórilluna Rafiki. Górillan Rafiki var hluti af Nkuringo ættbálknum sem hefur verið vinsæll á meðal ferðamanna í Bwindi þjóðgarðinum í Úganda. Fyrsta dag júní mánaðar tóku þjóðgarðsverðir eftir því að Rafiki væri hvergi að sjá en degi síðar fannst hræ hans limlest í garðinum. Krufning leiddi í ljós að Rafiki hafði verið skorinn í magann og urðu líffæri hans fyrir skemmdum vegna árásarinnar. Veiðiþjófurinn Byamukama Felix var handtekinn nokkrum dögum síðar og játaði á sig ýmsar sakir, þar á meðal að hafa drepið górillu inn á verndarsvæði. Sagði Felix að hann hafi drepið Rafiki með spjóti eftir að hann réðst að honum og samfylgdarmönnum hans sem voru við veiðar á svæðinu. Þrír þeirra voru einnig handteknir en þar sem að þeir lýstu yfir sakleysi sínu standa réttarhöld enn yfir. Rafiki var leiðtogi hópsins sem hann tilheyrði sem samanstóð af sautján górillu, Yfirmaður dýraverndar Úganda, Sam Mwandha, segir við CNN að réttlætinu hafi verið fullnægt. „Ef ein manneskja drepur villt dýr, þá töpum við öll á því. Þess vegna viljum við fá alla með okkur í lið við að tryggja öryggi lífríkisins fyrir komandi kynslóðir.“
Úganda Dýr Mest lesið Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Fleiri fréttir Fjögur hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Sjá meira