Perlur Íslands: „When in doubt, farðu til Seyðisfjarðar“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 11. júní 2020 12:30 Helgi Ómarsson segir að Íslendingar gætu auðveldlega stoppað í viku á Seyðisfirði og fundið eitthvað áhugavert að gera. Mynd/Helgi Ómarsson „Árið 1999 fluttum við fjölskyldan til Seyðisfjarðar og þar byrjaði hægt og rólega mjög sterkt ástarsamband mitt við bæinn,“ segir ljósmyndarinn Helgi Ómarsson. Hann er búsettur í Danmörku en er í augnablikinu í heimsókn hjá fjölskyldunni á Seyðisfirði. Helgi er bloggari á Trendnet og er með hlaðvarpið Helgaspjallið sem finna má meðal annars á Spotify. Ljósmyndarinn heldur líka úti gullfallegu Instagrammi, sem allir áhugasamir um tísku, ferðalög og heilsu ættu að skoða. Mynd/Helgi Ómarsson „Ég hef alltaf sagt að Seyðisfjörður býr yfir magískri orku í andrúmsloftinu. Að alast upp hér þá verður tekur maður margt sem sjálfssögðum hlut en ég flyt frá Djúpavogi sem var líka mikil náttúruperla. Núna þegar ég er búinn að búa erlendis síðustu tíu ár þá fær maður alveg glænýja sýn á hvað Seyðisfjörður er stórkostlegur staður og hvað hann hefur margt að geyma.“ Mynd/Ómar Bogason Helgi segir að Seyðisfjörður sé hin fullkomna blanda af náttúru og menningu. „Hér er allt sem maður þarf og gæti ég auðveldlega mælt með að vera hérna í heila viku og það væri nóg hægt að gera og sjá. Hér er hægt að borða geggjaðan mat, pizzurnar á Skaftfelli eru þær bestu úti á landi og þar eru einnig reglulegir matseðlar með hinum ýmsu kúsínum. Hótel Aldan er líka yndisleg, á sumardögum hittast allir fyrir utan og borða geitaostasalat eða eitthvað djúsí. Inni í bænum er líka sundhöllin okkar sjarmatröll bæjarins. Eldgömul sundlaug með krúttlegum draugum og gott vibe.“ Ómar Bogason, faðir Helga, hefur tekið margar gullfallegar myndir á Seyðisfirði. Mynd/Ómar Bogason Nefnir hann sérstaklega yndislega Vestdalinn. „Þar eru gönguleiðir upp að fossum, tjörnum og svæðið þarna er ótrúlega fallegt. Vestdalseyrin er einnig mjög sérstök, þar var bæjarlífið áður, þar var kirkja og verslanir. Það er hálf magnað að spá í því þegar maður stendur þarna. En svo er gönguleiðir úti um allan fjörðinn - og inni í bænum eru fjallageitur í öðru hverju húsi sem geta komið með nýjar gönguleiðir fyrir fólk til að prófa.“ Mynd/Ómar Bogason Í þetta skiptið kom Helgi til Íslands með skipi frá Danmörku og var nokkra daga á leiðinni. Fjölskyldan beið svo eftir honum á bryggjunni. Mynd/Ómar Bogason „Á veturna er skíðasvæðið okkar í Stafdal best í heimi og Seyðisfjörður finnst mér geggjaður á veturna. Ég veit ekki hvort bæjarbúar séu sammála mér, en ég er búinn að búa í rennandi blautri Kaupmannahöfn í rúmlega átta ár og sakna snjóstormsins og vetrarríkið sem ég ólst upp við hér.“ Mynd/Ómar Bogason „When in doubt, farðu til Seyðisfjarðar,“ segir Helgi að lokum. Mynd/Ómar Bogason Perlur leynast víða á Íslandi og það er ljóst að sumarið 2020 verða Íslendingar á ferð og flugi um alla landshluta. Vísir verður á flakki með landanum í sumar. Veist þú um perlu sem landsmenn ættu ekki að missa af á ferðalagi? Segðu okkur frá og sendu okkur myndir á netfangið ritstjorn@visir.is. Við birtum valdar frásagnir hér á Vísi. Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Perlur Íslands Seyðisfjörður Tengdar fréttir Perlur Íslands: Glymur í Hvalfirði kom skemmtilega á óvart Fréttamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson segir frá dýrmætri minningu með föður sínum og bróður. Hann dreymir um að fara feðgaferð upp á Esjuna. 10. júní 2020 21:00 Perlur Íslands: „Ekkert annað í kring en svartur vikursandur og þögnin“ Telma Lucinda Tómasdóttir saknar gömlu náttúrulaugarinnar í Þjórsárdal. Þangað fór hún á hestum, gangandi og keyrandi. 1. júní 2020 14:30 Perlur Íslands: „Vestfirskur konfektkassi“ Tómas Guðbjartsson hefur ferðast um nánast allt Ísland, annað hvort gangandi eða á skíðum. Arnarfjörðurinn er samt í miklu uppáhaldi. 30. maí 2020 07:00 Mest lesið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Króli trúlofaður Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið
„
Perlur leynast víða á Íslandi og það er ljóst að sumarið 2020 verða Íslendingar á ferð og flugi um alla landshluta. Vísir verður á flakki með landanum í sumar. Veist þú um perlu sem landsmenn ættu ekki að missa af á ferðalagi? Segðu okkur frá og sendu okkur myndir á netfangið ritstjorn@visir.is. Við birtum valdar frásagnir hér á Vísi.
Ferðalög Ferðamennska á Íslandi Perlur Íslands Seyðisfjörður Tengdar fréttir Perlur Íslands: Glymur í Hvalfirði kom skemmtilega á óvart Fréttamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson segir frá dýrmætri minningu með föður sínum og bróður. Hann dreymir um að fara feðgaferð upp á Esjuna. 10. júní 2020 21:00 Perlur Íslands: „Ekkert annað í kring en svartur vikursandur og þögnin“ Telma Lucinda Tómasdóttir saknar gömlu náttúrulaugarinnar í Þjórsárdal. Þangað fór hún á hestum, gangandi og keyrandi. 1. júní 2020 14:30 Perlur Íslands: „Vestfirskur konfektkassi“ Tómas Guðbjartsson hefur ferðast um nánast allt Ísland, annað hvort gangandi eða á skíðum. Arnarfjörðurinn er samt í miklu uppáhaldi. 30. maí 2020 07:00 Mest lesið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Króli trúlofaður Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið
Perlur Íslands: Glymur í Hvalfirði kom skemmtilega á óvart Fréttamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson segir frá dýrmætri minningu með föður sínum og bróður. Hann dreymir um að fara feðgaferð upp á Esjuna. 10. júní 2020 21:00
Perlur Íslands: „Ekkert annað í kring en svartur vikursandur og þögnin“ Telma Lucinda Tómasdóttir saknar gömlu náttúrulaugarinnar í Þjórsárdal. Þangað fór hún á hestum, gangandi og keyrandi. 1. júní 2020 14:30
Perlur Íslands: „Vestfirskur konfektkassi“ Tómas Guðbjartsson hefur ferðast um nánast allt Ísland, annað hvort gangandi eða á skíðum. Arnarfjörðurinn er samt í miklu uppáhaldi. 30. maí 2020 07:00