Marc Martel færir tónleika til hausts 12. mars 2020 14:12 Marc Martel hefur stundum verið sagður Freddy Mercury endurfæddur. Tónleikar hans sem áttu að fara fram þann 8. apríl hefur verið frestað til 31. október.
Tónleikar Marc Martel, The Ultimate Queen Celebration hafa verið færðir fram á haust. Marc Martel mun því trylla lýðinn í Laugardalshöllinni þann 31. október en áður höfðu tónleikarnir verið dagsettir þann 8. apríl. Ákvörðun um að færa tónleikana var tekin vegna kórónuveirunnar af forsvarsmönnum Twe Live sem standa að tónleikunum. „Ákvörðunin er tekin í samráði við Marc Martel. Við ákváðum að gera þetta núna svo allir vissu hvar þeir standa,“ segja forsvarsmenn Twe Live í fréttatilkynningu. Þeir segja nánast ómögulegt að vinna að risatónleikum sem þessum í allri þeirri óvissu sem nú ríkir vegna kórónaveirunnar og mögulega yfirvofandi samkomubanni. „Við teljum að það sé skylda okkar að vinna með yfirvöldum hér á landi til þess að ná tökum á þessari skæðu veiru sem gengur nú yfir heimsbyggðina og enginn veit í hvaða átt mun fara.“ Þeir miðahafar sem vilja fá miðana endurgreidda geta haft samband við miðasöluna Tix.is en þeir sem vilja halda miðunum þurfa ekkert að gera og halda sínum upprunalegu miðum þegar tónleikarnir fara fram. „Við biðjumst innilegrar afsökunar á þessari breytingu sem gerð er vegna þessara ótrúlegu aðstæðna. Við hlökkum til að sjá ykkur í haust á Marc Martel The Ultimate Queen Celebration.“ watch on YouTube Lítið er eftir af miðum og þeir sem ekki vilja missa af geta nálgast miða á tónleikana hér. Þessi kynning er unnin í samstarfi við Twe Live.
Tónlist Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira