Tómamengi: Fjölröddun á tímum faraldurs Sylvía Hall skrifar 4. apríl 2020 19:15 Viðburðurinn verður í beinni útsendingu hér á Vísi klukkan 20 í kvöld. Mengi
Áshildur, Svanur, Guðrún Hrund og Pamela flytja nýleg verk eftir Gunnar Andreas í Tómamengi í kvöld. Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi klukkan 20. Eftirfarandi verk verða flutt í kvöld: Vörður/Cairns fyrir víólu og tölvu (2018), opinber frumflutningur. Lengd ca. 11’ Flytjandi: Guðrún Hrund Harðardóttir Rammar/Frames fyrir altflautu, kontrabassaflautu og lúppustöð (2018). Lengd ca. 11’ Flytjandi: Pamela De Sensi Þrír skúlptúrar/Three Sculptures fyrir flautu, gítar og hljóðrás (2017), frumflutningur. Lengd 8’ Flytjendur: Áshildur Haraldsdóttir og Svanur Vilbergsson Verkin eiga það sameiginlegt að sameina lifandi hljóðfæraleik og rafhljóð, en hvert á ólíkan máta. Þau eru öll afsprengi vinnu Gunnars í Tónverinu í Kópavogi á árunum 2016-2018 og sýna nýja hlið á tónskáldinu. Á tímum faraldurs, þegar ómögulegt er fyrir stærri tónlistarhópa að koma saman og flytja lifandi tónlist, er kærkomið að geta flutt verk fyrir 1-2 hljóðfæraleikara þar sem fjölröddun er náð fram með hjálp lúppustöðvar, tölvu eða hljóðrásar. Three Sculptures, sem er unnið upp úr verkinu Fluid Sculptures fyrir flautukór og gítar, hefur aldrei verið flutt áður. Hljóðrásin samanstendur af upptökum á 10 flauturöddum, allt frá kontrabassaflautu upp í pikkóló, sem Áshildur spilaði allar inn hverja á eftir annari nema kontrabassaröddina sem var spiluð af Pamelu. Verkið Vörður var samið fyrir Guðrúnu Hrund vorið 2018 en heyrist nú í fyrsta sinn opinberlega. Rammar var pantað af Pamelu og frumflutt á tónleikum í Listasafni Íslands vorið 2018. Hægt verður að styrkja þessa góðu tónlistarmenn og tónskáld; Með því að hringja í 901-7111 (1.000 krónur) Með millifærslu á Kass appinu í númerið 865-3644 (upphæð að eigin vali) Með PayPal millifærslu á payment@mengi.net (upphæð að eigin vali) Hefðbundið miðaverð á tónleika í Mengi er 2.000 krónur en listamenn og tónskáld þakka kærlega fyrir öll framlög.
Samkomubann á Íslandi Tónlist Mest lesið Hvorki síldarævintýri né gervigreind Lífið Vill hvetja mæður til að segja eigin sögu Lífið Töframaður fann Dimmu heila á húfi Lífið Féll niður fimmtán metra á Súlum: „Þetta er bara búið, ég átti gott líf“ Lífið Óþægilegt erótískt ljóð Kennedy afhjúpað í framhjáhaldsdeilu Lífið Missti seinni fótinn sex árum eftir þann fyrri Lífið Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Menning Skrautlegur dagur Guðrúnar Hafsteins og Fannars Lífið Bróðurinn grunaði að Hulda væri hálfsystir þeirra Lífið Fréttatía vikunnar: Dreki, HúbbaBúbba og verðbólgan Lífið Fleiri fréttir Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira