Mercedes-AMG One últrabíllinn hefur reynst erfiðari í smíðum en gert var ráð fyrir. Miðað við prófanirnar í myndbandinu þá er hann biðarinnar virði.
Teymið að baki Mercedes-AMG One stendur nú í brautarprófunum á bílnum. Prófanirnar snúast um að gera vélina, 1,6 lítra V6 úr Formúlu 1 bíl Mercedes til aksturshæfa fyrir almúgann. Lewis Hamilton, nýkrýndur sexfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 leit við á dögunum.
Í lausagangi gengur vélin á 5000 snúningum í Formúlu 1 bílnum. Venjulega er þessi vél ræst með utanaðkomandi startmótor. Auk þess sem utanáliggjandi vatnsdælur hita hana upp í nokkra klukkutíma áður en hún er ræst. Sá munaður er ekki í boði þegar kemur að bíl sem þarf að geta virkað á teymis verkfræðinga, á götum úti.
Það þarf því að leysa ýmis vandamál, en Hamilton segir bílinn hljóma eins og Formúlu 1 bíl þegar setið er í honum.
Lewis Hamilton vann yfirburðasigur í formúlu eitt á þessu tímabili en hann var löngu búinn að tryggja sér sigurinn áður en kom að síðustu keppninni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær. Arnar Björnsson skoðaði endapunktinn á ótrúlegu tímabili breska heimsmeistarans.
Daimler móðurfélag Mercedes-Benz hefur gefið út að 10.000 störf að lágmarki verði skorin niður til að mæta aukinni fjárfestingaþörf vegna þróunar rafbíla. Audi ætlar að fækka starfsfólki um 9.500 af þeim 61.000 sem starfa hjá framleiðandanum í Þýskalandi.