Alfreð: Það er bara okkar hlutverk að þagga niður í þeim Óskar Ófeigur Jónsson í Antalya skrifar 12. nóvember 2019 12:30 Alfreð Finnbogason. Vísir/Sigurður Már
Alfreð Finnbogason segir stefnuna vera að þagga niður í hávaðasömum stuðningsmönnum Tyrkja á fimmtudagskvöldið og reyna að gera þetta að eftirminnilegu kvöldi fyrir íslensku strákana. Alfreð Finnbogason hefur þurft á horfa nokkra leiki íslenska landsliðsins í þessari undankeppni þar sem hann var að glíma við meiðsli. Nú er framherjinn aftur á móti kominn aftur á flug og hefur gengið vel með Augsburg að undanförnu. „Það er mjög skemmtilegt eins og alltaf að vera kominn hérna til Tyrklands að hitta strákanna. Hér eru góðar aðstæður og það koma upp góðar minningar frá því síðast að við vorum hérna. Við æfðum hérna áður en við unnum þá 3-0 á útivelli,“ sagði Alfreð Finnbogason eftir æfingu strákanna í Antalya. Liðið setti upp búðir á sama stað og á sama hóteli og þegar liðið mætti síðast til Tyrklands.Náum vonandi að búa til sömu tilfinningu „Við náum vonandi að búa til sömu tilfinningu inn í hópnum og förum með jákvæða strauma inn í þennan leik,“ sagði Alfreð um leikinn á fimmtudagskvöldið. „Þetta er gjörbreytt lið hjá Tyrkjum síðan þá. Þeir hafa yngt upp í liðinu og það eru að koma inn mjög góðir ungir leimenn sem eru að spila í stóru deildunum í Evrópu. Þeir hafa kannski hent út stærri nöfnunum sem voru ekki að skila því sem óskað var eftir hjá þeim í landsliðinu. Við vitum því að þetta er öðruvísi lið en við höfum mætt síðustu ár og þeirra árangur talar sínu máli. Þetta verður gríðarlega erfitt,“ sagði Alfreð. Ísland vann fyrri leikinn 2-1 á Laugardalsvellinum en nú er spilað á heimavelli Galatasaray. „Við vitum að þessar þjóðir eins og Tyrkland eru alltaf töluvert betri á heimavelli en á útivelli. Þeir sýndu það með því að vinna heimsmeistarana á sínum heimavelli. Við þurfum að eiga topp, topp leik ef við ætlum að sækja stig hér í Tyrklandi. Það er ljóst.,“ sagði Alfreð.Alfreð Finnbogason.Vísir/Sigurður MárTyrkir hafa ekki enn fengið á sig mark á heimavelli í þessari undankeppni. „Við þurfum að breyta því. Við skoruðum þrjú mörk á þá fyrir tveimur árum. Við höfum sannað það að við getum líka skorað í Tyrklandi og unnið þá þar. Við unnum þá síðan á okkar heimavelli og ég er sannfærður um það og það er trú í hópnum að við getum strítt þeim og gert eitthvað sem öðrum liðum hefur ekki tekist í riðlinum,“ sagði Alfreð. Hávaðinn verður örugglega mjög mikill á Türk Telekom Stadium en Alfreð segir að íslenska liðið renni nú ekki alveg blint út í sjóinn. Liðið hefur spilað tvisvar í Tyrklandi á síðustu fjórum árum og þótt að þeir vellir hafi verið minni var hávaðinn gríðarlegur.Við vitum nákvæmlega hvað við erum að fara út í „Við vitum nákvæmlega hvað við erum að fara út í. Við höfum tvisvar spilað á móti þeim undir svipuðum kringumstæðum. Í undankeppni EM 2016 þá tryggðu þeir sér sæti á EM með því að skora á okkur á lokamínútunum. Það var ágætis hávaði á vellinum á þeim tímapunkti. Síðast þegar við unnum þá 3-0 þá fann maður líka fyrir gríðarlegum hávaða í byrjun leiks og í undirbúningi leiksins. Það er bara okkar hlutverk að þagga niður í þeim,“ sagði Alfreð og bætti við: „Núna verður þetta í Istanbul og á einum af stærstu völlunum þeirra og það verður svolítil upplifun fyrir okkur að taka þátt í þessu. Það er undir okkur komið að gera þetta að eftirminnilegu kvöldi,“ sagði Alfreð.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sjá meira