
Rauði krossinn áréttar að Alþjóðleg mannúðarlög eiga að tryggja grunnþarfir óbreyttra borgara, jafnvel á tímum átaka. Í norðaustur Sýrlandi eru innviðirnir, til dæmis vatnsstöðvar og stíflur, fyrir vatnsveitukerfi staðsett nálægt átakasvæðum og mikilvægt að þeir séu verndaðir.
Fram kemur í fréttinni að Rauði krossinn fylgist með ástandinu og hafi brugðist við til að áhrifin af vatnsskorti verði sem minnst. Í byrjun nóvember dreifði Rauði krossinn samtals 460 þúsund lítrum af drykkjarvatni og studdi við Al Hol búðirnar, Areesha búðirnar, miðstöðvar fyrir flóttafólk í Hasekah-borg og fangelsi. „Rauði krossinn hvetur alla deiluaðila til að virða líf borgara og taka til allra mögulegra ráðstafana til að vernda og virða borgara og innviði samfélaga og leyfa fólki að komast í skjól sem vill flýja átakasvæðin.“
Rauði krossinn á Íslandi hefur stutt við aðgerðir Alþjóðaráðs Rauða krossins og sýrlenska Rauða hálfmánans í Sýrlandi með stuðningi Mannvina Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins, meðal annars með störfum sendifulltrúa, auk fjármagns. Elín Oddsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur sem er margreyndur sendifulltrúi er að störfum í Sýrlandi fyrir Alþjóðaráðið og verður næstu þrjá mánuði á vettvangssjúkrahúsi Rauða krossins í Al Hol búðunum.
Neyðarsöfnun Rauða krossins vegna Sýrlands lýkur 1. desember næstkomandi.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.