JCB náði 218,7 km/klst. sem er stórbæting á fyrra meti sem var 166,7 km/klst. Gamla metið var sett í júní á þessu ári af JCB Fastrac One.
Breytingarnar sem gerðar voru á milli metanna voru þónokkrar. Yfirbyggingin er straumlínulagaðara og hann er um 10% léttari. Hámarkshraðinn sem náðist var 247,5 km/klst. En meðaltal var tekið af tveimur tilraunum, einni í hvora átt.
„Að ná fimm tonna traktor á öruggan hátt á um 240 km/klst. er ekki auðvelt. En við erum ótrúlega stolt af því að ná þessum markmiðum okkar,“ sagði Tim Burnhope, þróunar og vaxtarstjóri JCB.