„Nú fer ég að leggjast undir feld,“ segir Lilja.
Ráðherra segist ætla að leggjast yfir næstu skref í málinu, þar með talið að taka viðtöl við umsækjendur, og gerir ráð fyrir að sú vinna fari fram í næstu viku.
Lilja mælti fyrir frumvarpi sínu um sviðslistir á Alþingi í dag þar sem meðal annars er sett hámark á tíu ár í starfi Þjóðleikhússtjóra.
Sjö um hituna
Sjö umsækjendur voru um starf Þjóðleikhússtjóra sem auglýst var laust til umsóknar þann 1. maí en umsóknarfrestur var til 1. júlí.Ari Matthíasson hefur gegnt starfinu undanfarin tæp fimm ár og sækist eftir endurráðningu. Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri og Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri eru sömuleiðis meðal umsækjenda. Aðrir umsækjendur eru Brynhildur Guðjónsdóttir leikari og leikstjóri, Guðbjörg Gústafsdóttir og Stefán Sturla Sigurjónsson verkefnastjóri, leikari og rithöfundur.

Í framhaldinu voru umsækjendur boðaðir á fund Capacent og spurðir frekar út úr. Þjóðleikhúsráð skilaði af sér og í framhaldinu var skipuð þriggja manna valnefnd í mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Þriggja manna valnefnd
Samkvæmt heimildum Vísis skipuðu valnefndina Auður B. Árnadóttir og Stefán Baldursson, skrifstofustjórar í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, og Jóna Finnsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Listaháskóla Íslands.Valnefndin lauk sem fyrr segir störfum í gærkvöldi og er boltinn nú hjá menntamálaráðherra.

Standa í ströngu
Birna Hafstein, formaður Félags íslenska leikara, hefur kvartað undan framgöngu Ara í starfi Þjóðleikhússtjóra. Hann hefur svarað þeim ásökunum og segir Birnu hafa farið um með ósannindi um sig, sína persónu og starfsemi leikhússins.Ríkisendurskoðun hefur séð ástæðu til þess að gera stjórnsýsluúttekt á Ríkisútvarpinu hvar Magnús Geir er útvarpsstjóri. Ríkisendurskoðandi hefur sagt ýmsar ástæður fyrir því að könnuð sé fjárhagsstaða stofnunarinar, hagkvæmni og skilvirkni umfram það sem hefðbundin fjárhagsendurskoðun leiði í ljós.
Þá stendur Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri í ströngu fyrir dómstólum þar sem vænta má dóms á næstu dögum í máli Atla Rafns Sigurðssonar leikara. Honum var sagt upp störfum í Borgarleikhúsinu, ómaklega að eigin sögn, og hefur krafist skaðabóta.