Pochettino staðfestir að Lloris hafi verið fluttur á sjúkrahús Anton Ingi Leifsson skrifar 5. október 2019 14:30 Lloris liggur óvígur eftir. vísir/getty
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segir að meiðsli Hugo Lloris hafi haft mikil áhrif á Totteham-liðið sem fékk annan skellinn á sömu vikunni er liðið tapaði gegn Brighton í dag. Hugo Lloris meiddist strax á þriðju mínútu eftir að Brighton skoraði fyrsta markið og Pochettino segir að það hafi haft mikil áhrif. „Þetta var erfitt fyrir liðið. Á fyrstu augnablikunum fengum við á okkur mark og misstum markvörðinn okkar,“ sagði Pochettino strax í leikslok. „Þetta var mjög neikvætt fyrir liðið. Tilfinningarnar voru miklar og við spiluðum ekki vel og erum vonsviknir með það. Brighton spilaði vel.“"When we were on top we were all together, now it's important we stick together." Mauricio Pochettino reacts to Spurs' defeat at Brighton and gives an update on Hugo Lloris...@DesKellyBTSpic.twitter.com/AIfUlHxwM0— Football on BT Sport (@btsportfootball) October 5, 2019 „Meiðsli Hugo Lloris höfðu mikil áhrif á leikinn og þetta var svo snemma í leiknum. Að fá á sig mark og að missa fyrirliðinn hafði mikil áhrif.“ „Hann er á sjúkrahúsi núna og það er ekkert meira um það að segja á þessum tímapunkti,“ sagði Argentínumaðurinn. Hann þakkaði hins vegar stuðningsmönnum Tottenham fyrir stuðninginn. „Ég vil þakka stuðningsmönnunum. Eftir fimm og hálft ár erum við í fyrsta skipti að lenda í vandræðum. Það er ekki góð tilfinning en við verðum að halda áfram að leggja hart að okkur og trúa á þetta.“ „Ég vona að pressan komi á mig en ekki leikmennina. Núna er tímapunkturinn til þess að vera sterkir. Við getum ekki vanmetið stöðuna en við þurfum að leggja á okkur,“ sagði stjórinn.
Enski boltinn Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport Fleiri fréttir Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Sjá meira