Arnór lagði upp mark í mikilvægum sigri og CSKA hafði betur í Íslendingaslag Anton Ingi Leifsson skrifar 22. september 2019 17:51 Arnór ásamt þjálfara sínum Uwe Rösler. vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason lagði upp þriðja mark Malmö er liðið vann 3-0 sigur á Elfsborg á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni. Arnór kom inn sem varamaður á 63. mínútu og lagði upp þriðja markið sex mínútum fyrir leikslok en Malmö er í öðru sætinu, þremur stigum á eftir Djurgården. Arnór Sigurðsson spilaði fyrstu 84 mínúturnar er CSKA Moskva vann 3-2 sigur á Krasnodar í rússlandi en Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn fyrir Krasnodar. Eftir sigurinn er CSKA í öðru sæti deildarinnar með 22 stig, stigi á eftir Zenit frá Pétursborg, en Krasnodar er í fjórða sætinu með 20 stig. Sverrir Ingi Ingason var ónotaður varamaður er PAOK gerði 2-2 jafntefli við Aris á heimavelli í Grikklandi. PAOK er með tíu stig eftir fjórar umferðir og er í 2. sætinu. Mikael Anderson spilaði fyrsta klukkutímann er Midtjylland gerði markalaust jafntefli við FCK í toppslag í danska boltanum en eftir jafnteflið er Midtjylland áfram á toppi deildarinnar. Daníel Hafsteinsson var ónotaður varamaður er Helsingborgs vann 2-1 sigur á Eskilstuna í Svíþjóð. Helsingborgs er eftir sigurinn í tíunda sætinu. Samúel Kári Friðjónsson hafði betur gegn Matthíasi Vilhjálmssyni í Íslendingaslag í Noregi er Viking vann 4-0 sigur á Vålerenga. Viking í fimmta sætinu en Vålerenga því níunda. Arnór Smárason spilaði svo allan leikinn fyrir Lilleström sem gerði 1-1 jafntefli við Kristiansund á heimavelli í sömu deild. Lilleström í 10. sætinu. Íslendingaliðið Álasund er svo skrefi nær sæti í úrvalsdeildinni eftir 3-1 sigur á Notodden. Davíð kristján Ólafsson spilaði allan leikinn fyrir Álasund en Hólmbert Aron Friðjónsson síðustu þrettán mínúturnar. Aron Elís Þrándarson sat allan tímann á bekknum en Álasund er með fjórtán stiga forskot á Start er átján stig eru eftir í pottinum.
Norski boltinn Rússneski boltinn Sænski boltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira