"Gríðarlega mikil þörf á nýjum þjóðarleikvangi“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. ágúst 2019 22:06 Guðni Bergsson segir aðkallandi að fá nýjan þjóðarleikvang. vísir/daníel
Laugardalsvöllur hefur verið rekinn með tapi í mörg ár. Í fyrra nam það tæpum 30 milljónum króna. En hvað skýrir þetta mikla tap á rekstri þjóðarleikvangsins? „Ég held að þetta sé rekstrareiningin sem við erum að eiga við; völlurinn sem slíkur er kominn til ára sinna að upplagi og hönnun. Hann er 60 ára gamall. Það er erfitt að reka þennan leikvang, jafnvel þótt framlag komi frá Reykjavíkurborg,“ sagði Guðni Bergsson, formaður KSÍ, í samtali við Guðjón Guðmundsson í Sportpakkanum. „Á þessu ári vorum við með stórleika Eds Sheeran sem hjálpar til við að lagfæra þessa slagsíðu á rekstri vallarins, þótt þetta komi öðruvísi inn í okkar reikningsuppgjör. Þetta vegur á móti tapinu á rekstri vallarins sem er ágætt.“ Guðni segir aðkallandi að fá nýjan þjóðarleikvang. „Við erum byrjuð að vinna á fullu í undirbúningsfélagi sem hagsmunaaðilar Reykjavíkurborgar, ríkisvaldsins og KSÍ koma að. Þar rýnum við í hvaða kostir eru í stöðunni, hvað við þurfum mögulega að gera og hvað þetta muni kosta. Sú vinna er í fullum gangi,“ sagði Guðni. „Þetta er langur ferill og hefur staðið yfir í um fjögur ár. En það er kominn tími á niðurstöðu í málið. Eins og ég sé þetta er gríðarlega mikil þörf á nýjum leikvangi.“ Fréttina í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.
KSÍ Laugardalsvöllur Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Biður Dag afsökunar Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Fleiri fréttir Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Sjá meira