Segir umræðuna kjánalega um Manchester United og aðdráttarafl félagsins Anton Ingi Leifsson skrifar 9. ágúst 2019 06:00 Gary Lineker. vísir/getty
Gary Lineker, sparkspekingur BBC Sport og fyrrum framherji, segir að það sé bull og vitleysa að Manchester United geti ekki lengur barist um heitustu bitana á leikmannamarkaðnum. Ed Woodward, stjórnarformaður Manchester United, hefur sætt mikilli gagnrýni og margir rætt um að United sé ekki sama félag og það var fyrir nokkrum árum þar sem flestir leikmenn heims vildu spila fyrir félagið. Lineker, sem stjórnar þættinum Match of the Day á BBC, gefur lítið fyrir þetta í löngu viðtali við Goal.com eftir að félagaskiptaglugganum var lokað í gær. „Það er kjánalegt að segja að Manchester United sé ekki það sem þeir voru einu sinni og það er enginn spurning að þeir eru áfram frábært fótboltafélag,“ sagði Lineker við vefsíðuna Goal. „Fótboltinn sveiflast hratt. Það vinnur enginn deildina endalaust lengur og það er gott því við viljum sjá ný sigurlið og nýjar sögur. United er áfram risa stórt fyrir hvern leikmann og það sáts með Harry Maguire í síðustu viku.“ Sparkspekingurinn nefndi Liverpool í sama viðtali og sagði að rökin um Manchester United héldu heldur ekki neinu vatni er rætt væri um Liverpool. „Liverpool er frábært félag en þeir hafa ekki unnið deildina í 30 ár. Erum við því að tala um núna að þeir séu ekki með sama afl og eitt sinn útaf því? Þeir eru Evrópumeistarar, frábært félag og eru með frábært lið í dag. Fótboltinn er ekki bara svart og hvítt.“
Enski boltinn Mest lesið Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Sjá meira