Lífleg vatnaveiði síðustu daga Karl Lúðvíksson skrifar 30. júní 2019 12:00 Bleikjan er að taka grimmt þessa dagana Mynd: Ríkarður Hjálmarsson
Júní og júlí eru gjarnan bestu mánuðirnir til að stunda silungsveiði og það er greinilegt þegar við týndum til fréttir héðan og þaðan go silungsveiðin gengur vel. Við heyrðum af veiðimömnum sem voru í Apavatni í gær og veiddu mjög vel þrátt fyrir að það hafi gustað aðeins um miðjan daginn. Þar voru þrír veiðimenn á ferð með um 70 bleikjur sem veiddust á spún og flugu. Nokkrir voru við veiðar í Laugarvatni og týndu upp bleikjur. Það voru margir við Þingvallavatn í gær og þeir sem þekkja vatnið og hafa verið að stunda það duglega veiddu mjög vel enda skiptir þekking á vatninu afskaplega miklu máli eins og annars staðar til að ganga vel. Veiðin var góð nokkurn veginn alls staðar en við höfum heyrt af veiðimönnum sem voru í þjóðgarðinum, við Arnarfell, við Miðfell og á vesturbakkanum og það voru allir í fiski. Veiði hefur að sama skapi verið góð á vesturlandi en það hefur verið fín veiði í Hraunsfirði, Selvallavatni, Baulárvatni og í Hítarvatni. Þetta er klárlega tíminn þar sem veiðimenn og veiðikonur á öllum aldri eiga að drífa sig út og ná sér í silung í soðið.
Mest lesið Ein af vinsælustu flugum sumarsins Veiði Langá opnaði í morgun með tveimur löxum Veiði Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Veiði Fleiri fréttir af opnunum laxveiðiánna Veiði Laxinn dreifir sér vel í Korpu Veiði 59 laxar úr Eystri Rangá í gær Veiði Melta söluskrána með hangikjötinu Veiði Dýrasti dagurinn á 450.000 í Laxá í Ásum? Veiði Stundum vill hann bara Frigga Veiði Metopnun í Selá Veiði