Neymar sagður vera búinn að semja við Barcelona Henry Birgir Gunnarsson skrifar 26. júní 2019 10:30 Neymar er til í að fórna miklum peningum til að spila aftur fyrir Barca. vísir/getty
Samkvæmt heimildum spænska blaðsins Sport þá er allt klárt á milli Brasilíumannsins Neymar og Barcelona fari svo að spænska félagið geti keypt hann til baka frá PSG. Neymar er orðinn hundleiður í París og er til í að fórna meðal annars miklum peningum til þess að komast aftur til Barcelona þar sem hann telur gleðina vera. Sport segir að Neymar hafi náð samkomulagi um fimm ára samning við Börsunga. Leikmaðurinn verður því 32 ára er samningurinn rennur út. Hann hefur verið næstlaunahæsti leikmaður heims með 36,8 milljónir evra, 5,2 milljarða króna, á ári hjá PSG en er til í að fara á gamla samninginn sinn hjá Barcelona sem færir honum 24 milljónir evra á ári eða 3,4 milljarða króna. Það er launalækkun upp á 1,8 milljarða á ári. Eitthvað sem gerist ekki á hverjum degi. Spænska blaðið segir að Neymar hafi ekki einu sinni reynt að rífast um launin. Brasilíumaðurinn hefur verið í málaferlum við Barcelona þar sem hann telur félagið skulda sér laun. Hann mun draga það mál til baka. Nú stendur það á félögunum að semja um kaupverð og það verður ekki auðvelt enda vill PSG græða á leikmanninum.
Spænski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira