Fótbolti

Spalletti fékk sparkið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Spalletti kom Inter í Meistaradeildina bæði tímabilin sín við stjórnvölinn hjá liðinu.
Spalletti kom Inter í Meistaradeildina bæði tímabilin sín við stjórnvölinn hjá liðinu. vísir/getty
Inter er búið að reka knattspyrnustjórann Luciano Spalletti. Félagið greindi frá þessu í morgun.



Þessar fréttir koma lítið á óvart en eftir lokaumferð ítölsku úrvalsdeildarinnar sagðist Spalletti ekki búast við því að vera áfram hjá Inter.

Næsta víst er að Antonio Conte verði ráðinn næsti stjóri Inter. Hann hefur verið án starfs síðan hann var látinn fara frá Chelsea síðasta sumar.

Spalletti tók við Inter 2017. Liðið endaði í 4. sæti ítölsku deildarinnar bæði tímabilin undir hans stjórn og komst í Meistaradeild Evrópu.

Inter hefur ekki orðið ítalskur meistari síðan 2010.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×