Bleikjan farin að taka í Hraunsfirði Karl Lúðvíksson skrifar 20. maí 2019 09:47 Sjóbleikja úr Hraunsfirði Mynd: Bjarni Júlíusson
Vötnin eru nú að taka vel við sér hvert af öðru og framundan er að margra mati sex vikur af besta tímanum í vatnaveiðinni. Það eru margir veiðimenn á því að miður maí fram í byrjun júlí sé besti tíminn fyrir vötn á láglendi en auðvitað er upplifun veiðimanna oft æði misjöfn. Vötn eins og Hraunsfjörður sem dæmi geta verið góð frá byrjun maí og fram í september enda er verið að elta sjóbleikju að mestu leiti þar en ekki bara staðbundna bleikju. Það eru því góðar fréttir sem berast þaðan einhverjir veiðimenn hafa verið að fá fyrstu bleikjurnar úr vatninu síðustu daga og það er vonandi að komast góður kippur í tökuna sem hefur verið heldur dræm það sem af er tímabilinu. Hraunsfjörður er nefnilega eitt af skemmtilegri vötnum til að veiða á vesturlandi og það sem dregur veiðimenn að vatninu er væn og falleg sjóbleikja. Eins og matgæðingar vita er víst erfitt að finna nokkurn bragðbetri fisk en sjóbleikju svo það er skiljanlegt að veiðimenn landsins séu til í að gefa sér tíma til að ná henni.
Mest lesið Líflegt í vötnunum Veiði Meira af tölfræði í Eystri Rangá 2020 Veiði Sjóbirtingsveiðin fer vel af stað Veiði Varmá kemur sterk inn í vorhlýindum Veiði 103 sm lax úr Ytri Rangá Veiði Vorveiðinni lokið í Laxá í Kjós Veiði Síðasta rjúpnahelgin framundan Veiði Töluvert af gæs komin í tún og akra Veiði Ein sú vinsælasta í urriðann á Þingvöllum Veiði 94 sm hængur úr Laxá í Kjós Veiði