Fyrstur til að vera kosinn bestur í þremur af bestu deildunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. maí 2019 22:00 Cristiano Ronaldo fagnar með liðsfélögum sínum Federico Bernardeschi og Leonardo Spinazzola. Getty/Marco Canoniero
Cristiano Ronaldo fullkomnaði tvær einstakar þrennur á sínu fyrsta tímabilið með Juventus. Metin hrannast upp hvers sem Portúgalinn fer. Cristiano Ronaldo varð á dögunum fyrsti leikmaður í sögunni sem verður landsmeistari í Englandi, á Spáni og á Ítalíu en hann gekk einu skrefi lengra. Cristiano Ronaldo er líka fyrsti leikmaðurinn til að vera kosinn besti leikmaður tímabilsins í öllum þessum þremur deildum eða ensku úrvalsdeildinni, spænsku La Liga og ítölsku Seríu A. Cristiano Ronaldo var valinn bestur í ensku úrvalsdeildinni tvö tímabil í röð eða 2006-07 og 2007-08. Hann var þá leikmaður Manchester United og var bæði kosinn bestur af fjölmiðlamönnum sem og leikmönnum deildarinnar. Cristiano Ronaldo var með 17 mörk og 15 stoðsendingar í 34 leikjum tímabilið 2006-07 og skoraði 31 mark og gaf 7 stoðsendingar tímabilið 2007-08. Síðasta tímabilið hans á Englandi 2008-09 var hann með 18 mörk og 7 stoðsendingar en þá voru Steven Gerrard (fjölmiðlar) og Ryan Giggs (leikmenn) kosnir bestir í ensku úrvalsdeildinni. Ronaldo var seldur til Real Madrid sumarið 2009 og var síðan kosinn besti leikmaður spænsku deildarinnar tímabilið 2012-13. Hann endaði þá einokun Lionel Messi á verðlaununum. Ronaldo var með 34 mörk og 11 stoðsendingar í 34 leikjum þetta tímabil (2012-13) en hafði skorað yfir 40 mörk tímabilin á undan. Þá gerði Messi hins vegar enn betur. Ronaldo fékk verðlaunin ekki aftur. Real Madrid seldi Ronaldo síðan til Juventus síðasta sumar og Cristiano var kosinn leikmaður ársins á sínu fyrsta tímabili í ítölsku deildinni. Á sínu fyrsta tímabili með Juve var Ronaldo með 21 mark og 11 stoðsendingar í 31 deildarleik.
Enski boltinn Ítalski boltinn Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira