6. júní hreinsunardagur Elliðaánna Karl Lúðvíksson skrifar 29. maí 2019 12:33 Laxinn er mættur og þá er ekki seinna vænna en að taka aðeins til við ánna. Mynd: KL
Hin sívinsæla hreinsun Elliðaánna sem er árlegur viðburður á vegum Stangaveiðifélags Reykjavíkur, fer fram fimmtudaginn 6. júní nk. Hreinsunarverkefnið verður gangsett við veiðihúsið í Elliðaárdal klukkan 17.00. Árnefnd Elliðaánna annast skipulagningu og utanumhald þessa verkefnis f.h. SVFR og er þess vænst að viljugir félagsmenn í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur og aðrir velunnarar Elliðaánna taki þátt í þessu þakkláta verkefni. Gert er ráð fyrir að hreinsun verði lokið um kl. 20.00. Verkefnum verður deilt á milli þátttakenda við veiðihúsið kl. 17.00 og þeim falin hreinsun á tilteknum svæðum við Elliðaárnar, en víða er að finna rusl og annan óþrifnað í og með ánum. Verkefni dagsins er að gera umhverfi ánna eins snyrtilegt og kostur er og SVFR til sóma í hvívetna. Undanfarin ár hafa margir félagsmenn brugðist vel við ákalli SVFR um að leggja gjörva hönd á plóg við þetta tækifæri og hafa ekki séð eftir því. Enda er það almannarómur að þeir sem taka þátt í þessu átaki hafi ekki borið skarðan hlut frá borði í veiði í Elliðaánum í framhaldinu, enda eru það staðkunnugir árnefndarmenn og aðrir gjörkunnugir félagsmenn sem fara fyrir hreinsunarflokkunum og miðla gjarnan af visku sinni og reynslu við þetta tækifæri. Öllum er frjálst að leggja hönd á plóginn enda allir velunnarar Elliðaánna velkomnir. Þátttakendur eru hvattir til þess að vera í klofstígvélum eða vöðlum, þar sem gjarnan þarf að hirða rusl úr árfarveginum. Einnig er fólk hvatt til að búa sig eftir aðstæðum að öðru leyti. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hvetur félagsmenn sína sem og aðra vini Elliðaánna til þátttöku í hreinsunarátakinu.
Mest lesið Veiddi betur meðan bókin súrraði í kolli hans Veiði Fjórir í framboði fyrir þrjú sæti í stjórn SVFR Veiði Frábært opnunarholl í Norðurá Veiði 50 laxa metopnun í Blöndu í gær Veiði Vefsalan hjá Lax-Á að fara í gang Veiði Framtíð veiðistjórnunar á Íslandi - tillögur Skotvís Veiði Umsóknarfrestur SVFR rennur út í kvöld Veiði Þrjú ný vötn fyrir Veiðifélaga Veiði Nægt framboð af villtri gæs og önd fyrir hátíðarnar Veiði Fyrstu laxarnir komnir í Korpu Veiði