Rauði krossinn: Neyðarsöfnun vegna ofsaflóða í sunnanverðri Afríku enn í gangi Heimsljós kynnir 15. apríl 2019 10:45 Móðir með barn. Rauði krossinn.
Alvarlegt ástand ríkir enn í sunnanverði Afríku eftir að fellibylurinn Idai skall á svæðið fyrir rúmum fjórum vikum. Flóðin sem fylgdu fellibylnum ollu gríðarlegum skaða í Mósambík, Malaví og Simbabwe en af þessum þremur ríkjum er ástandið hvað verst í Mósambik og þar breiðist smitsjúkdómurinn kólera hratt út. Í frétt frá Rauða krossinum segir að í heildina hafi fellibylurinn haft áhrif á rúmlega þrjár milljónir manna í þessum heimshluta og um 250 þúsund manns hafi misst heimili sín. „Tugir þúsunda heimila hafa jafnast við jörðu. Þar af auki eyðilagði fellibylurinn þúsundir akra af uppskeru sem mun hafa veruleg áhrif á mataröryggi á svæðinu. Þá eru stór svæði og borgir án rafmagns og fjarskipti liggja niðri. Ástandið er talið eitt það versta á svæðinu í áratugi, en að minnsta kosti 960 manns eru taldir af. Í Mósambík er tala látinna komin yfir 600 og rúmlega 4 þúsund kólerusmit hafa þar verið greind,“ segir í fréttinni. Þar segir ennfremur: „Viðamiklar aðgerðir á vegum Rauða krossins eru nú í gangi og sjálfboðaliðar og starfsfólk vinna hörðum höndum við að hjálpa fólki á svæðinu. Allt kapp er lagt á að bæta aðgengi hreinlætisaðstöðu og hreinu vatni til að hefta útbreiðslu smitsjúkdóma. Rauði krossinn veitir læknis- og mataraðstoð, húsaskjöl ásamt því að aðstoða fólk að finna týnda fjölskyldumeðlimi. Róbert Þorsteinsson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, er á svæðinu og hefur umsjón með fjármálum neyðaraðgerðanna í Malaví. Þar af auki vill svo til að sendifulltrúarnir Halldór Gíslason og Bjarni Sigurðsson, starfsmenn Íslandsbanka sem lánaðir voru Rauða krossinum til að styðja við uppbyggingu malavíska landsfélagsins á sviði upplýsingatækni voru nýlega í Malaví ásamt Guðnýju Nielsen, verkefnastjóra Rauða krossins sem sinnir langtímaþróunarsamstarfi í þremur héruðum í sunnanverðu landinu. Á undanförnum árum og áratugum hefur Rauði krossinn á Íslandi starfað náið með systurfélögum sínum á þessu svæðum bæði í Malaví og Mósambík. Náin tengsl hafa myndast á þessum tíma milli okkar og þessara landsfélaga og segja má að málið standi okkur nærri. Rauði krossinn á Íslandi er afar þakklátur fyrir allan þann stuðning sem borist hefur frá almenningi. Fjölmargir hafa lagt söfnuninni lið og barst neyðarsöfnuninni meðal annars 500.000 kr. styrkur frá einstaklingi. Deildir Rauða krossins á Íslandi hafa einnig lagt söfnuninni lið með rúmlega 4 milljóna króna framlögum.“ Söfnun Rauða krossins til hjálpar fórnarlömbum fellibylsins í sunnanverðri Afríku er í fullum gangi. Hægt er að styðja starfið með 2900 kr. framlagi með því að senda SMS skilaboðin HJALP í númerið 1900. Einnig má leggja inn á reikning 0342 - 26 - 12, kt. 530269-2649.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Appelsínugular viðvaranir taka gildi: Stormur og sums staðar ofsaveður Veður Hætta að taka við og dreifa smábögglum frá Kína Erlent Trump segir Bandaríkjamenn munu taka yfir og „eignast“ Gasa Erlent „Svona endaði baráttan vegna skiltisins umtalaða“ Innlent „Þú ert í grunninn að mynda annað fólk og hvaða heimild hefur þú til þess?“ Innlent Harkaleg umræða fái kennara til að hugsa sína stöðu Innlent Ellefu létust í skotárásinni Erlent Gagnrýnir deilur um þingflokksherbergi á meðan bráðamóttakan er yfirfull Innlent Segir engan vilja búa á Gasa Erlent Fylgi flokks borgarstjórans dalar Innlent