Konungurinn af Malasíu sagði óvænt af sér Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 6. janúar 2019 13:24 Muhammad fimmti sagði óvænt af sér. Ap/Yam G-Jun
Muhammed fimmti, konungurinn af Malasíu, hefur sagt af sér embætti eftir aðeins tvö ár í starfi. Engin ástæða hefur verið gefin fyrir afsögninni. Hinn 49 ára gamli konungur tók við völdum árið 2017 og átti hann að gegna embætti í fimm ár. Konungurinn í Malasíu er kjörinn af níu ríkisstjórum sem mynda sérstakt ríkisráð. Aðeins þeir sem eru ríkisstjórar koma til greina og eftir að hver konungur hefur lokið kjörtímabili sínu má hann ekki bjóða sig aftur fram fyrr en að allir hinir hafi gert slíkt hið sama. Ákvörðun Muhammed þykir koma nokkuð á óvart enda er þetta í fyrsta skipti síðan Malasía öðlaðist sjálfstæði árið 1957 sem konungur segir af sér embætti. Konungsembættið í Malasíu er að mestu táknrænt og hefur konungurinn lítil sem engin eiginleg völd, þrátt fyrir að vera þjóðhöfðingi Malasíu. Fjölmiðlar eystra hafa greint frá því að Muhammed hafi í haust gifst hinni 25 ára gömlu rússnesku fegurðardrottningu Oksana Voevodina sem kjörinn var ungfrú Moskva árið 2015. Ekkert hefur þó fengið staðfest um það en í nóvember sagðist Mahatir Mohamad, forsætisráðherra Malasíu, ekki hafa fengið neinar upplýsingar um hið meinta brúðkaup.
Asía Kóngafólk Malasía Mest lesið „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Innlent „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ Innlent Fleiri fréttir Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Sjá meira