Vann sinn sjötta BMW á 6 árum Finnur Thorlacius skrifar 22. nóvember 2018 09:30 Marc Marques við BMW M4 CS bílinn sem hann vann fyrir skömmu.
Safn BMW-bíla MotoGP ökumannsins Marc Marques er fagurt og telur orðið sex bíla á sex árum en alla þessa bíla hefur hann unnið fyrir það að eiga besta brautartíma í undankeppnum í MotoGP-mótaröðinni. Hann vann BMW M6 Coupe árið 2013, M4 CS árið 2014, M6 Convertible árið 2015, M2 Coupe árið 2016, M4 CS árið 2017 og nú nýverið M3 CS bíl, en allir þessir bílar teljast til ofuröflugra bíla frá M-deild BMW. BMW mun aðeins smíða 1.200 bíla af þessari nýjustu gerð BMW M3 CS, en hann er búinn 453 hestafla forþjöppudrifinni 3,0 lítra og 6 strokka vél. Bíllinn er aðeins 3,9 sekúndur í 100 km hraða og er með hámarkshraðann 280 km/klst., en hann er takmarkaður rafrænt við þann hraða en kemst mun hraðar án þeirrar takmörkunar. BMW hefur gefið þeim ökumanni bíl úr sinni smiðju sem í lok hvers keppnistímabils fær flest stig úr tímatökum fyrir allar keppnir ársins. Þetta hefur BMW gert síðastliðin 20 ár og hefur Marc Marques náð því öll síðustu sex árin. Magnaður árangur það.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Erlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent