Dregur verulega úr limlestingum á kynfærum stúlkna í Afríku Kjartan Kjartansson skrifar 10. nóvember 2018 21:47 Kona mótmælir limlestingum á kynfærum kvenna í Berlín. Vísir/EPA
Verulega hefur dregið úr tíðni limlestinga á kynfærum stúlkna í löndum Afríku undanfarna tvo áratugi samkvæmt nýrri rannsókn. Sameinuðu þjóðirnar telja engu að síður að um 200 milljónir kvenna hafi orðið fyrir limlestingu á kynfærum í heiminum, aðallega í Afríku og Miðausturlöndum. Rannsóknin nær til 29 ríkja allt aftur til ársins 1990. Mest hefur dregið úr limlestingunum í austanverðri Afríku. Árið 1995 var kynfærri 71% kvenna limlest en árið 2016 var hlutfallið komið niður í 8%, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Í norðurhluta Afríku fór hlutfallið úr 60% árið 1990 í 14% árið 2015 og í vestanverðri álfunni fór það úr 74% árið 1996 niður í 25% árið 2017. Skýrsluhöfundarnir benda á að tölurnar nái til stúlkna undir fjórtán ára aldri. Þekkt sé að eldri táningsstúlkur og ungar konur verði einnig fyrir limlestingum á kynfærum. Limlesting á kynfærum kvenna hefur verið iðkuð í þrjátíu löndum í Afríku, Asíu og Miðausturlöndum. Yfirleitt er hún framkvæmd þegar stúlkurnar eru yngri en fimmtán ára. Þá eru öll ytri kynfærin eða hluti þeirra skorin af, þar á meðal snípurinn. Í sumum tilfellum getur aðgerðin leitt til þess að stúlkum blæði út eða þær deyi af völdum sýkinga. Aðgerðin getur jafnframt leitt til viðvarandi verkja, ófrjósemi og vandamála við tíðir. Í sumum tilfellum getur hún leitt til lífshættulegra vandamála við barnsburð.
Afríka Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira