Veiðin í Soginu í sumar reyndist þegar upp var staðið vera nokkuð betri en margir áttu von á og það stefnir í enn betra sumar 2019.
Nú stefnir í að netin verði tekin upp þannig að laxinn kemst óhindrað upp í Sog, Stóru Laxá og aðrar ár á svæðinu. Flestir telja þessa aðgerð löngu tímabæra og það verður því spennandi að sjá hvaða áhrif þetta mun hafa á veiðisvæðin sem tengjast Hvítá og þá sérstaklega Stóru Laxá og Sogið.
Sogið á sér marga unnendur sem taka þessum fregnum fagnandi. Nú þegar veiðibækur eru skoðaðar sést að Sogið hefur aðeins tekið við sér en það á líka mikið inni. Ásgarður er það svæði sem gaf flesta laxa í Soginu og veiðitölur úr veiðistöðum þar sýna sem fyrr að Ásgarðsbreiða og Frúarsteinn halda áfram að vera gjöfulustu staðirnir Ásgarðsmegin enda sést á listanum hér fyrir neðan að þessir tveir staðir gáfi 171 lax saman. Hér fyrir neðan er listinn yfir veiðistaðina og hvað hver staður gaf marga laxa. Við hlökkum til að sjá þessar tölur hækkandi í framtíðinni og vitum sem er að unnendur Sogsins hlakka til góðra stunda við þessa fallegu á.
Ásgarðsbreiða - 89 laxar
Frúarsteinn - 82 laxar
Ármót - 22 laxar
Símastrengur - 19 laxar
Bátalón - 11 laxar
Hlíðin - 7 laxar
Gíbraltar - 5 laxar
Neðri Tangi - 3 laxar
Hvannhólmi - 2 laxar
Kvígutangi - 1 lax
Vatnsmælir - 1 lax
Miðtangi - 1 lax
Efri Tangi - 1 lax
Heildarveiði í Ásgarði - 264 laxar
171 lax úr tveimur veiðistöðum við Ásgarð í Soginu
