Jökla fór óvenjusnemma í yfirfall sem gerði veiðina í Jöklu sjálfri ómögulega en veiðin í hliðaránum var engu að síður ágæt á veiðitímanum.
Jökla varð hrein aftur núna í september en var lítið veidd. Veiðin í hliðaránum hefur aftur á móti verið fín en til að mynda veiddust 15 laxar á fjórar stangir þar í gær og var leginn og nýgengin lax þar í bland þar af nokkrir rígvænir. Svæðið er komið í 500 laxa en veiðin hefði klárlega verið mun meiri ef Jökla hefði farið á yfirfall seinna eins og hún gerir venjulega eða um lok ágúst eða byjrun september.
Framtíðin fyrir veiði á Jöklusvæðinu er björt því samkvæmt seiðatalningum er mikil aukning í hrygningu og sýnir þéttleiki seiða í mælingum það svart á hvítu. Þéttleikinn hefur nær þrefaldast á nokkrum árum og með þessu framhaldi stefnir í að hrygningin verði orðin það góð að veiðin verði alveg sjálfbær í Jöklu.

