Bæjarstjóri Akureyrar fær 1,6 milljónir Sigurður Mikael Jónsson skrifar 29. september 2018 00:00 Ásthildur var ráðin bæjarstjóri frá 14. september síðastliðnum til loka kjörtímabils. AKUREYRARBÆR
Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar samþykkti á fundi sínum á miðvikudag ráðningarsamning og launakjör Ásthildar Sturludóttur bæjarstjóra. Ásthildur var ráðin bæjarstjóri frá 14. september síðastliðnum til loka kjörtímabils. Samkvæmt ráðningarsamningnum fær Ásthildur 1.150 þúsund krónur í dagvinnulaun sem taka breytingum samkvæmt launavísitölu í janúar og júlí ár hvert. Ofan á það leggst síðan stjórnendaálag sem nemur 517.500 krónum, eða 45 prósentum af mánaðarlaunum samkvæmt samningnum. Stjórnendaálag er sagt þóknun fyrir unna yfirvinnu og allt áreiti utan dagvinnutíma, undirbúning, ferðatíma, móttökur gesta og annað vinnuframlag utan dagvinnutíma. Alls verða laun bæjarstjórans því 1.667.500 krónur en Ásthildur fær ekki greitt aukalega fyrir setu í bæjarstjórn, bæjarráði eða öðrum nefndum bæjarins. Bæjarstjóri fær greitt fyrir akstur í þágu vinnuveitanda á eigin bifreið samkvæmt skráningu í akstursdagbók. Bærinn greiðir einnig kostnað bæjarstjóra vegna notkunar á farsíma ásamt kostnaði við heimanettengingar. Bærinn leggur bæjarstjóra til farsíma og fartölvu til notkunar í störfum og kaupir líf- og slysatryggingu fyrir bæjarstjórann. Fréttablaðið greindi frá því í maí að laun bæjarstjóra Akureyrar voru alls 1.562 þúsund krónur á síðasta ári.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana Erlent Faðirinn ekki lengur í einangrun Innlent Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Innlent Fleiri fréttir Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Svandís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Bjarkey ekki undir feldi Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung Einn á slysadeild eftir árekstur tveggja hlaupahjóla Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Pallborðið: „Taumlaus græðgi“ eða verðið á hveiti? Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir föðurnum Sjá meira