Laxá í Aðaldal gefur á hverju ári ansi marga stóra laxa og líklega er ekkert veiðisvæði á landinu sem á jafn marga laxa yfir 100 sm eins og Nessvæðið.
Einn af þeim sem þekkir þetta svæði eins og lófan á sér er Nils Folmer en hann hefur líklega landað fleiri stórlöxum þarna síðustu ár en nokkur annar veiðimaður. Hann er við veiðar á Nessvæðinu núna og í gær landaði hann átta löxum og þar af einni 107 sm hrygnu sem samkvæmt okkar heimildum er stærsta hrygnan sem hefur veiðst í ánni í sumar. Hún mældist 58 sm í ummáli og líkleg þyngd er um 24-26 pund. Hrygnan tók í Grundarkvísl á Meridian númer 8#.
Þrátt fyrir að veiðin í Laxá hafi verið heldur róleg í sumar er besti tíminn fyrir stórlaxana þar að renna upp og eru margir veiðimenn sem gera sérstaklega út á þennan tíma til að freista þess að komast í 20 punda klúbbinn þar nyrðra.
107 sm hrygna sú stærsta í sumar í Laxá
