Ekki skortir afl né munað
Það er sko engin aumingjavél undir húddinu á Aurus Senat, eða 4,4 lítra V8 vél með tveimur forþjöppum sem skila 598 hestöflum og tengd við 9 gíra sjálfskiptingu. Þessi vél var þróuð með hjálp Porsche. Bíllinn er að auki fjórhjóladrifinn. Viður, leður og pússað stál er allsráðandi í innanrými bílsins og bíllinn því ríkulegur mjög.Hann er mjög vel tæknilega búinn og með allrahanda aksturs- og öryggisbúnaði sem líklega er fenginn frá bílaframleiðendum vestar í álfunni. Framleiðandi Aurus Senat, sem ber nafnið Nami, hefur ekki enn látið uppi verð þessa bíls, en það er örugglega stór haugur af rúblum.