Kjósin og Grímsá á góðu róli Karl Lúðvíksson skrifar 24. júlí 2018 09:00 Tekist á við lax í Laxá í Kjós.
Það er ansi greinilegt af þeim fréttum sem berast af bökkunum að laxveiðin á vestur og suðurlandi virðist ætla að vera góð í sumar. Laxá í Kjós hefur notið þess, en reyndar líka stundum liðið fyrir, að það hefur verið blautt í sumar en veiðin í ánni hefur verið mjög fín það sem af er tímabilinu. "Laxá í Kjós er mjög góð og óvenju mikið af stórlaxi. Dagarnir eru að gefa okkur 20-30 laxa auk hefðbundinna stórsjóbirtinga. Það vekur mikla athygli að laxinn hikar við að ganga upp Bugðu, og fyrir vikið er svokölluð Pollabreiða gegnt veiðihúsinu þétt setin laxi. Ástæðan er sú að enn er snjóbráð úr norðanverðri Esjunni, sem er ótrúlegt að við erum að detta inn í síðustu viku júlímánaðar. Fyrir vikið er Bugða kaldari en Laxáin og er líkt og laxinn bíði eftir að hitastig árinnar hækki" sagði Haraldur Eiríksson hjá Hreggnasa um stöðu mála í Laxá í Kjós. "Grímsá er í sama takti og Kjósin, nema að nú er komin mikil ferð á laxinn og efstu tvö svæðin sterkari en neðri hlutinn. Laxinn virðist ekki lengur hinkra við Laxfoss heldur gengur beint upp úr Myrkhyl. Lúsugir laxar eru að veiðast á dalnum og veiði góð. Athygli vekur að óvenju mikið er af sjóbirtingi í Grímsá, og sem dæmi veiddist í dag 83cm birtingur í Grafarhyl" bætir Haraldur við í samtali við Veiðivísi.
Mest lesið Stóra Laxá að klára með stæl Veiði Veiðiævintýri í Norðlingafljóti með Ólafi Veiði Veiddu vel á léttklæddar flugur Veiði Gæsaveiðin fer rólega af stað Veiði Þrjár komnar yfir 1.000 laxa Veiði Íslenskir veiðimenn í útrás Veiði 101 sm lax úr Eystri Rangá Veiði Veiðin gengur vel í Elliðaánum Veiði Laxinn gengin upp á svæði II og III í Blöndu Veiði 59 laxar úr Eystri Rangá í gær Veiði