Bruno Mars hefur ekki enn fundið tónlistarmann til þess að koma í stað Cardi B á tónleikaferðalagi sínu um Bandaríkin. Rapparinn Cardi B hætti við tónleikaferðalagið til þess að sinna móðurhlutverkinu. TMZ greinir frá því að Bruno Mars sé orðinn mjög áhyggjufullur vegna málsins.
Cardi B hætti við að túra um Bandaríkin ásamt Bruno til þess að ná sér eftir fæðingu síns fyrsta barns, en hún eignaðist dótturina Kulture með rapparanum Offset nú í byrjun júlí.
Sjá einnig: Cardi B hættir við tónleikaferðalag: „Ég vanmat þetta mömmudæmi“
Slúðurmiðillinn TMZ greinir frá því að starfsmenn Bruno Mars séu á fullu að reyna að finna tónlistarmann í stað Cardi en ekkert sé að ganga.
Starfsfólk Bruno hefur haft samband við fjölmarga tónlistarmenn en enginn virðist geta komið með honum á túr með svona stuttum fyrirvara.
Tónleikaferðalagið á að hefjast í September og verða tónleikar haldnir í flest öllum stórborgum Bandaríkjanna.
Gengur illa að fylla í skarð Cardi B

Tengdar fréttir

Cardi B hættir við tónleikaferðalag: „Ég vanmat þetta mömmudæmi“
Bandaríski rapparinn Cardi B er hætt við að fara með Bruno Mars á túr í haust.

Dóttir Cardi B og Offset komin í heiminn
Hin nýbakaða móðir greindi frá fæðingunni á Instagram-reikningi sínum í dag.

Cardi B með flestar tilnefningar til myndbandaverðlauna MTV
Tilnefningar til MTV myndbandaverðlaunanna hafa verið kynntar og er það en verðlaunin verða veitt þann 20.ágúst næstkomandi í Radio City Music Hall.