Enska landsliðið mun ekki ganga af velli ef leikmenn liðsins verða fyrir kynþáttaníði Henry Birgir Gunnarsson skrifar 7. júní 2018 08:30 Southagte og Rose. vísir/getty
Margir hafa áhyggjur af kynþáttaníði á HM í Rússlandi enda gerist það því miður æði oft að leikmenn lendi í slíkum uppákomum í fótboltaleikjum þar í landi. Bara síðast í mars var rússneska knattspyrnusambandið sektað þar sem áhorfendur voru með kynþáttaníð í garð hörundsdökkra leikmanna franska landsliðsins. Varnarmaður enska landsliðsins, Danny Rose, segist vera orðinn ónæmur fyrir níðinu úr stúkunni og hefur þess utan enga trú á kerfi fótboltayfirvalda. Rose hefur sagt fjölskyldu sinni að koma ekki til Rússlands því það geti átt von á öllu þar. Því hefur eðlilega verið velt upp hvað lið eigi að gera ef leikmenn verða fyrir kynþáttaníði á HM. Landsliðsþjálfari Englands, Gareth Southgate, fékk þessa spurningu í gær. „Í fullkomnum heimi myndum við labba af velli en það myndi þýða að okkur yrði hent heim af mótinu. Ég held að leikmenn hafi ekki áhuga á því þeir hafa æft alla ævina til þess að spila á HM,“ sagði Southgate. Leikmenn enska landsliðsins hafa rætt þessi mál sín í milli og ætla að bregðast við á einhvern hátt ef svona kemur upp á. Þó ekki með því að labba af velli.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Ísak Snær skoraði í svekkjandi jafntefli Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Sjá meira