Lexi sendi frá sér töluvert magn tónlistar í fyrra á mjög stuttum tíma, þar fór fremst í flokki lagið Piano Jam sem var talið eitt besta rapplagið það árið á Íslandi af útvarpsþættinum Kronik. Hann hefur unnið töluvert með pródúserahópnum 808 Mafia og einnig J.U.S.T.I.C.E. League – hann gaf út heila plötu með þeim síðarnefndu. Lexi var búsettur í Atlanta um tíma en þar vann hann með mörgum risastórum nöfnum í senunni. Þetta eru hans fyrstu formlegu tónleikar á landinu þó að hann hafi komið nokkrum sinnum fram áður.
Hann segir að á þessa tónleika megi jafnvel líta sem útgáfutónleika fyrir plötuna hans sem kom út í desember í fyrra, sem var alfarið pródúseruð af áðurnefndum J.U.S.T.I.C.E. League.
„Ég ætla að spila þá plötu í heild sinni þannig að við getum alveg kallað þetta útgáfutónleika. Mjög síðbúna útgáfutónleika, en það er aldrei of seint að fagna, ekki satt? Ég ákvað líka að taka með mér þá bestu: Joey Christ og Birni. Þarna verða líka leynigestir. Ég er fjandi viss um að þetta verður það langbesta sem er að gerast í kvöld og bara alla helgina.“

„Ég er að bíða eftir því að hún komi til landsins – svo við getum gefið þetta út saman – hent í pop-up tónleika og spilað síng- úlinn saman. Smá hlustunarpartí. Ég er líka með plötu á leiðinni og annað verkefni sem ég má ekki tala um alveg strax – en við skulum segja að ég sé búinn að toppa allt sem ég hef gert hingað til. Þetta er dæmi sem á eftir að brjóta internetið!“
Hann segist líka vera með fjögur tónlistarmyndbönd á leiðinni sem hann mun gefa út öll í einu, þar af eitt sem var tekið upp í 8K gæðum og telur hann það vera eina slíka myndbandið sem gert hafi verið í heiminum. Raunar eru gæðin svo mikil að aðeins tvær tölvur á landinu ráða við að vinna það. Hann segist ætla að gefa myndböndin öll út saman og stuttmynd með.
„Ég er fullkomnunarsinni og ég verð að hafa allt eins nálægt fullkomnun og ég get. Það gerir það stundum að verkum að ég er lengi að gefa út.“
Þetta verður sem sagt sumarið hans Lexa?
„Við skulum vona það! Ég meina, ég vil bara fá fólk til að brosa og vonandi fá smá tan hérna! Þetta sumar verður allavega eitt aðalsumarið fyrir þessa kynslóð. Þetta verður risasumar fyrir rapp, popp og hvað þú vilt kalla það. Við Íslendingar erum að sækja fram sem tónlistarmenn og ef ég á að vera hreinskilinn þá finnst mér að Íslendingar ættu að átta sig á því að við þurfum ekki að flytja inn stór nöfn í tónlist þegar við erum með svona hæfileikaríkt fólk hér á landinu sem getur gert miklu betri tónlist. Ég vil sjá Íslendinga standa jafn þétta og tvöfaldan Windsor-hnút.“
Kaupa má miða á tix og leikar hefjast klukkan tíu í kvöld.