Sjötíu milljón kjúklingar drepist vegna mótmælanna Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. maí 2018 08:28 Langar bílaraðir hafa myndast um alla Brasilíu. Vísir/AFp
Olíuverðslækkunin virðist ekki hafa sefað reiði vörubílstjóra, sem mótmælt hafa í Brasilíu síðustu vikur. Flest verkalýðsfélög vörubílstjóra tóku fagnandi 13 krónu lækkun díselverðs, sem forseti Brasilíu boðaði í gær, en þrátt fyrir það virðast nokkur þeirra ætla að halda aðgerðum sínum áfram. Stórir vöruflutningabílar hafa stíflað fjölfarnar umferðaræðar og lamað samgöngur í Brasilíu. Það hefur orðið til þess að raska nær öllu atvinnulífi landsins. Stærðarinnar verksmiðjum hefur verið lokað og kjötframleiðendur hafa greint frá því að um 70 milljón kjúklingar hafi drepist á síðustu dögum vegna fóðurskorts.Sjá einnig: Lækka olíuverð til að friða vörubílstjóraLangar raðir hafa myndast á bensínstöðvum, lítið sem ekkert eldsneyti er eftir á brasilískum flugvöllum og hillur verslana eru víða tómar. Olíuflutningabílar hafa jafnvel þurft að fá lögreglufygld í gegnum þau héröð sem verst hafa orðið úti eftir aðgerðir vörubílstjóranna. Stjórnvöld segja að hatrammir stjórnarandstæðingar hafi náð tökum á verkalýðshreyfingunni, sem á móti hefur kallað eftir afsögn forsetans. Hann hefur hótað að senda herinn á vörubílstjórana ef þeir stöðva ekki aðgerðir sínar. Nýlæg hækkun olíuverðs er talin hafa verið kveikjan að mótmælunum. Olíverð í Brasilíu hefur tvöfaldast frá árinu 2016.
Tengdar fréttir Lækka olíuverð til að friða vörubílstjóra Forseti Brasilíu hefur ákveðið að lækka verð á díselolíu í landinu til að binda enda á mótmæli vörubílstjóra. 28. maí 2018 06:17 Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Sjá meira
Lækka olíuverð til að friða vörubílstjóra Forseti Brasilíu hefur ákveðið að lækka verð á díselolíu í landinu til að binda enda á mótmæli vörubílstjóra. 28. maí 2018 06:17